Íslandsmót - skráningu lýkur í kvöld

Minnum á að lokafrestur hestamannafélaga til að skila inn skráningum á íslandsmóti yngri flokka rennur út á miðnætti í kvöld 15. júní 2009.

Hvert hestmannafélag fyrir sig sér um skráningu og óskum við eftir því að hvert félag skrái sína þátttakendur í Sportfeng mótanúmerið er IS2009HORO57.

Skráningargjöld eru 3.500 kr.- á grein. 

Skráningargjöld á að leggja inn á reikning 549-26-2320. KT 650169-4259 í einni greiðslu.