Skráning gengur vel fyrir Íslandsmót yngri flokka

María GyðaHestamannafélögin eru í fullum gangi með skráningu á Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna sem fram fer dagana 25.-28.júní nk.
 
Þátttaka er mjög góð og stefnir í metþátttöku, ef fer sem horfir. Harðarmenn eiga því von á miklum fjölda fólks í Mosfellsbæinn mótsdagana. 

Boðið verður m.a. upp á glæsileg tjaldstæði í Mosfellsdal og mögulegt að fá beit nálægt tjöldum með hesta sína, eins verður mögnuð veitingasala að hætti Gumma "Makker" og fleira og fleira. Hlökkum til að taka á móti góðum gestum.