Opinn fundur með Æskulýðsnefnd LH

Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga er að leggja í  fundaherferð um landið á næstu vikum. Fundirnir verða opnir öllum áhugamönnum um æskulýðsstarf í hestamannafélögunum og er það von nefndarinnar að sem flestir sjái sér fært að mæta. Æskulýðsnefndir félaganna eru sérstaklega hvattar til að mæta.

Fundur fyrir hestamannafélögin:

Hörð            270 Mosfellsbæ     Gestgjafar

Mána           230 keflavík

Sóta            225 Álftanesi

Sörla            220 Hafnarfirði

Andvara       210 Garðabæ

Fák              110 Reykjavík

Gust            200 Kópavogi

Fundurinn verður haldinn þann 12.febrúar kl. 20:00 í Félagsheimili Harðar (beygt til vinstri þegar komið er í hesthúsahverfið ekið ca 500 m)