Hinn árlegi fjölskyldureiðtúr verður sunnudaginn 4. maí
- Nánar
- Flokkur: Æskulýðsnefnd
- Skrifað þann Þriðjudagur, apríl 29 2008 11:39
- Skrifað af Super User
Hinn árlegi fjölskyldureiðtúr verður farinn nk. sunnudag þann 4. maí. Lagt verður af stað frá Naflanum kl. 13.00 og farið til Badda á Hraðastöðum, dýrin skoðuð og grillað saman.
Dagskráin er eftirfarandi:
13.00 Lagt af stað frá Naflanum
14.00 Komið til Hraðastaða – dýrin skoðuð
14.30 Grillað og borðað
16.00 Riðið til baka
17.00 Komið heim – dagskrá lokið
Skoðað verður hvort hópnum verði skipt í tvennt, hægari reið og hraðari reið. Fjölmennum í fjölskyldureiðtúrinn, gerum hann eftirminnilegan og vonum að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir en í dag er spáð golu, 12°C og (smá)skúrir
Athugið að tímasetningar er áætlaður tími.
Æskulýðsnefndin