Sýnikennsla fyrir unglinga og ungmenni!

Atli Guðmundsson verður með sýnikennslu tvö mánudagskvöld í febrúar ef næg þátttaka fæst. Lágmarksþátttaka er 10 manns svo námskeiðið verði haldið. Atli mun leggja áherslu á að sýna mýkjandi, losandi og safnandi æfingar sem eru heppilegur grunnur svona í upphafi vetrar. Þátttakendur prófa æfingarnar eftir fyrra skiptið og geta síðan spurt Atla í seinni tímanum og fengið nánari leiðbeiningar ef eitthvað hefur ekki gengið upp. Ath. foreldrar velkomnir með!! Verð fyrir bæði skiptin er kr.1000 pr. einstakling. Skráning og móttaka greiðslu verður í Harðarbóli þriðjudaginn 28. janúar frá klukkan 18-20. Nánari upplýsingar veitir Bryndís, netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða s. 6618102.