Hrossakjötsveisla 8villtra 2013
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Fimmtudagur, október 10 2013 22:16
- Skrifað af Ragna Rós
Hrossakjötsveisla 8villtra
Þann 26. Okt verður hin margrómaða hrossakjötsveisla 8villtra athugið með pínu lambakjötsívafi
Veislan byrjar kl 19:00 í Harðarbóli á fordrykk í boði 8villtra.
Kæru félagar matseðillinn hljóðar svona..
Hrossacarpacio með rucola og furuhnetum
Grafið hrossakjöt með bláberjasósu
Marinerað hrossaspjót „ oriental“
Hrossamedalíur með sesamgljáa
Aursturlenskur hrossapottréttur með salati
Saltað hrossakjöt með jarðeplum og ofaníláti
Reykt hrossakjöt með kartöflumauki
Soðinn EKTA hrossabjúgu með bíldudals grænum baunum og rauðkáli
Desert surprise ......vallah
Og svo fyrir þá sem vilja koma en borða ekki hrossakjöt þá verður glóðarsteikt lambalæri að hætti Hadda.
Kokkar verða Haddi kokkur aðsjálfssögðu og KK yfirhjálparhella
Veislustjórar eru Hákon ofurhressi og Rúnar „LÖGGA“ eiturhressi
Myndaannáll verður sýndur frá ferðum og viðburðum 8villtra 2013, það mun örugglega ekki vanta lýsingaorðin frá veislustjórunum J
Aðgöngumiðinn gildir sem happdrættismiði sem verður dregið út um kvöldið, einnig verða seldir miðar á sanngjörnu verði. Frábærir vinningar í boði.
Uppboð verður á folatolli og er folinn enginn annar en Kvistur frá Skagaströnd, eins verður uppboð á málverkum eftir Helmu
Margt verður hægt að kaupa á barnum á eðal verði
Hljómsveitin Kókos mun svo spila á ballinu frá kl 23:00-02:00
8VILLTIR VILJA MINNA FÉLAGSMENN Á AÐ ALLUR ÁGÓÐI RENNUR Í STÆKKUNARSJÓÐ HARÐARBÓLS.
Miðapantanir hjá This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. miðinn kostar 6500. Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórn 8villtra