Þjálfarastyrkur ÍSÍ
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Föstudagur, september 13 2013 17:51
- Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi.
Umsóknarfrestur er til 2. október og er upphæð hvers styrkjar 100.000 krónur. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á vefslóðinni http://isi.is/library/Skrar/Efnisveita/Eydublod/umsokn_um_thjalfarastyrk.pdf