Reiðnámskeið með Michel Becker

Léttleiki frá upphafi til enda 

Reiðnámskeið með Michel Becker Léttleiki, jafnvægi og sveigjanleiki er leiðin að hreinum og góðum gangtegundum. 

>10. feb. 2012 föstud.kvöld. Harðarból fyrirlestur og sýnikennsla frá 18:00 til 22:00

> 11. feb. 2012 laugardagur. Kennsla í reiðhöll frá 09:00 - 18:00

> 12. feb. 2012 sunnudagur. Kennsla í reiðhöll frá 09:00 - 18:00 

Verð: 18.000 kr.

 

 

Nánari upplýsingar í lesa meira

>Markmið námskeiðsins er að bæta jafnvægi og sveigjanleika hestsins en það er leiðin að bættum gangtegundum. Tilgangurinn með fimiæfingum er ekki að þvinga hestinn til að hreyfa sig á fallegan eða ”réttan” hátt í skilningi dressúrreiðmennskunnar, heldur að móta varlega eðlilegt hreyfingarmunstur hestsins í það að verða stjórnaðar hreyfingar. Þegar fimiæfingar eru framkvæmdar á réttan hátt fær hesturinn skýrar og skiljanlegar ábendingar í uppbyggilegri röð þannig að hann getur þróað jafnvægi og styrk og fundið ánægju í umbeðinni vinnu. Vellíðan í þjálfuninni leiðir af sér slakan og samstarfsfúsan hest. 

>Lögð er áhersla á að meta þarfir hvers þátttakanda fyrir sig í upphafi námskeiðsins. Farið verður í að leysa vandamál og mótþróa hjá jafnt hesti sem knapa á uppbyggilegan hátt. Í upphafi er áhersla lögð á vinnu í hendi þar sem hestur og knapi læra ábendingarnar sem síðan eru notaðar á hestbaki. Þátttakendur fá í hendurnar nýjar tillögur að leiðum og lausnum í þjálfuninni. Að hluta til eru aðferðirnar aðeins frábrugðnar því sem við höfum vanist sl. ár en þær eru mjög auðskiljanlegar fyrir hestinn og leiðir oft til ”aha-upplifana” hjá okkur knöpunum. Undirstaðan í allri vinnu er að hún sé framkvæmd með virðingu fyrir hestinum í fyrirrúmi. Engar þvingandi ábendingar eða hjálpartæki eru notaðar. 

>Michel Becker hefur unnið eingöngu við íslenska hesta í 25 ár en hefur einnig unnið með stórum hestum. Hann er franskur að uppruna en lengst af hefur hann unnið sem þjálfari, reiðkennari og járningamaður á hinu þekkta ræktunarbúi Wiesenhof í Þýskalandi. Einnig hefur hann starfað sjálfstætt í mörg ár. Hann er reiðkennari B fyrir íslenska hesta og hefur lokið þriggja ára námi hjá Philippe Karl í ”Skóla léttleikans” (”Ecole de Légèreté”) og hefur í mörg ár unnið að því að aðlaga þessi fræði að þörfum íslenska hestsins. Hann er sá eini í heiminum sem hefur lokið þessu námi en er sérhæfður í þjálfun íslenskra hesta. 

>Hugmyndafræðin sem Michel notar í kennslu sinni kemur að stórum hluta frá Philippe Karl (http://www.philippe-karl.com) en byggir á fræðum frá ”gömlum meisturum” eins og Xenophon, Pluvinel, La Guérinière og í seinni tíð Nuno Oliveira. Bruno Podlech á Wiesenhof hefur einnig verið áhrifamikil fyrirmynd fyrir hann og þar að auki er honum aðferðir úr Horsemanship mikilvægar í þjálfuninni. Michel kallar sjálfan sig „sífellt leitandi knapi“, og á við leitina að „hinni réttu leið“ þ.e. að hestvænni reiðmennsku og þjálfun þar sem hesturinn er ávallt í fyrirrúmi í öllum þáttum þjálfunarinnar.

>Í fjórða tölublaði Eiðfaxa 2011 má lesa viðtal við Michel.  

> Námskeiðið byrjar með fyrirlestri og sýnikennslu á föstudagskvöldinu (ca 4 klst) og á laugardag og sunnudag eru tvær kennslustundir á dag á mann með tveimur þátttakendum í hverjum tíma. 

> Í boði er að kaupa sig eingöngu inn á í fyrirlesturinn og sýnikennsluna.

Skráning hjá Mariönnu til 22. janúar : This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.