SÝNIKENNSLA
- Nánar
- Flokkur: Fræðslunefnd
- Skrifað þann Þriðjudagur, janúar 04 2011 14:10
- Skrifað af Super User
Guðmar Þór Pétursson reiðkennari verður með sýnikennslu í reiðhöll Harðar föstudaginn 7.janúar 2011 klukkan 20.00.
Guðmar Þór hefur eins og margir þekkja rekið tamningarstöð í Bandaríkjunum til margra ára. Þar hefur hann fengist mikið við kennslu, þjálfun og tamningar á íslenskum hestum, auk þess að kynna sér margskonar reiðmennsku- og þjálfunaraðferðir. Hann á að baki farsælan feril í keppni og þjálfun hérlendis.
Í sýnikennslunni mun Guðmar fjalla um skipulag þjálfunar í upphafi árs og áframhaldandi þjálfun. Einnig mun hann fjalla um líkamsbeytingu og formun, í tengslum við grein sem birtist í 7.tölublaði Eiðfaxa 2010 um þjálfun á stöngum. Auk þess mun Guðmar miðla því sem honum er helst hugleikið í reiðmennsku þessa dagana.
Í framhaldinu verður hægt að panta tíma í reiðkennslu hjá Guðmari í síma 8966726 eða netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Kennslan fer fram núna í janúar eftir nánara samkomulagi, í reiðhöll Harðar.
Aðgangur að sýnikennslunni kostar 1000 krónur og hefst hún stundvíslega klukkan 20.00. Léttar veitingar seldar í hléi.