Léttleiki og frelsi - fræðsla opin öllum
- Nánar
- Flokkur: Fræðslunefnd
- Skrifað þann Miðvikudagur, desember 08 2010 11:50
- Skrifað af Super User
Súsanna Ólafsdóttir tamningakona í Mosfellsbænum er að undirbúa Opinn fræðsludag fyrir reiðkennara, tamningafólk og reyndar alla hestaáhugamenn...
Um er að ræða dagskrá sem inniheldur bæði fyrirlestra og kennslusýningar og fer hún fram í félagsheimili og reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ nk laugardag og hefst kl. 9.30. Eiðfaxi hefur fylgst með framvindu verkefnisins og má fylgjast með því á www.eidfaxi.is.
Um hvað snýst þetta ?„Eftir að ég útskrifaðist frá Hólum sem reiðkennari hafa verið að mótast í huga mér hugmyndir dregnar af upplifun minni þar og reynslu minni sem tamningakona. Mér fannst eftir á að hyggja að heilmikið vantaði í kennsluna varðandi mannleg samskipti.
Mig langar með þessari sýningu að koma á framfæri einhverju af því sem ég tel að hafi verið að hjálpa mér í mínu starfi sem reiðkennari en það fólk sem mun flytja erindi þennan dag hefur allt kennt mér mikið af hagnýtum hlutum þegar til reiðkennslunnar kemur. Starf tamningamanna snýst um fleira en að temja hest. Tamningamenn eru að þjónusta fólk og við þurfum að vera flink í samskiptum við hesteigendur, viðskiptavinina okkar. Einnig á ég við í sambandi við hestaverslun. Það krefst leikni í mannlegum samskiptum að gera fólki til hæfis.
Áttu von á mörgum gestum?
Við erum viss um að við munum fá marga áhugasama gesti og þótt dagskráin
sé kannski sniðin fyrir reiðkennara þá er hún einnig gagnleg fyrir
nemendur þeirra og reyndar erum við að vona að við munum fá til okkar
fullt af venjulegu hestafólki og hestaáhugafólki.
Aðgangur að fyrirlestrum kostar kr. 2000.-. Innifalið er kaffi og hádegismatur. Allur ágoði af fræðsludeginum mun renna til viðbyggingar félagsheimilisins Harðarbóls.
Frítt er inn á sýnikennslu eftir hádegi.
Dagskrá Léttleiki og frelsis: Laugardagur 11.nóvember
- 09:30 Þórhildur Þórhallsdóttir félagsfræðingur og framhaldsskólakennari erindi. Spurningum svarað.
- 10:00 Þórunn Ólý Óskarsdóttir félagsráðgjafi erindi. Spurningum svarað
- 10:30 Umræður og kaffi.
- 11:00 Kristbjörg Halla, erindi og spurningum svarað.
- 11:30 Súsanna Sand Ólafsdóttir, erindi og spurningum svarað.
- 12:00 Umræður
- 12:15 Matur reiddur fram af Guðmundi Björgvinssyni (Makkerinn)
13:00 Sýnikennsla
- Léttleiki og frelsi I- Súsanna Sand Ólafsdóttir
- Spenntur knapi/spenntur hestur - Lina Erikson reiðkennari
- Jafnvægi knaspans - Line Nörgard reiðkennari
- Léttleiki og frelsi II - Súsanna Sand Ólafsdóttir
- Leiðtoginn - Þórhildur Þórhallsdóttir félagsfræðingur
- Leyniatriði – Eitthvað skemmtilegt sem kemur öllum á óvart!!