Sölubásar á Hestadögum í Reykjavík
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Þriðjudagur, febrúar 22 2011 09:14
- Skrifað af Super User
Vikuna 26. mars til 2.apríl verða haldnir Hestadagar í Reykjavík
Laugardagurinn 2 .apríl er einn af stærstu dögunum á hátíðinni, þar sem frítt verður inn í Fjölskyldu og Húsdýragarðinn. Þar verður mikið um að vera allan daginn með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Búist er við miklum fjölda í Laugardalinn þennan dag. Hestaþorp verður staðsett í miðjum garðinum þar sem handverksfólki og öðrum afþreyingarfyrirtækjum stendur til boða að vera með kynningar og sölubása. Sölubásarnir sem verða á staðnum eru húsin (jólaþorpið) sem er í eigu Hafnafjarðarbæjar. Athugið að aðeins er um einn dag að ræða frá kl 10-17. Þorpið verður sett upp föstudaginn 1.aprílVerð fyrir daginn/plássið er kr 7.500,-
Áhugasamir hafið samband við Ingibjörgu sem gefur allar nánari upplýsingar um Hestaþorpið á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Kveðja
Undirbúningsnefnd Hestaþorpsins