Stjórnarfundur 8. mars 2011
- Nánar
- Skrifað þann Sunnudagur, maí 01 2011 23:20
Hestamannafélagið Hörður
Fundur 4
Fundarstaður: Harðarból
Fundur hófst kl. 17.00
Mættir voru:
Guðjón Magnússon |
8945101 |
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
Guðmundur Björgvinsson |
8586421 |
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
Guðný Ívarsdóttir |
8997052 |
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
|
8648084 |
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
|
8447220 |
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
|
8971036 |
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
Ragnhildur Traustadóttir |
8934671 |
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
Sigurður Guðmundsson |
8995285 |
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
Sigurður Ólafsson |
8995282 |
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
Sigurður Teitsson |
8965400 |
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. |
Hestadagar
Hestadagar í Reykjavík verða haldnir í lok mánaðarins, um er að ræða eina viku þar sem hestamannafélögin á stór Reykjavíkursvæðinu verða með ýmsa viðburði og sameinast svo á laugardaginn 2.apríl í hópreið frá miðbæ Reykjavíkur, upp Laugaveginn inn Borgartún og í Fjölskyldu og húsdýragarðinn. Við stefnum að því að 50 til 60 hestar mæti frá Herði, í allt er gert ráð fyrir um 200 hestum.
Eineltisáætlun HarðarAfstaða Harðar og framgangur í eineltis og áreitismálum hefur verið lögð fyrir og samþykkt. Áætlunin er gerð í samráði við Mosfellsbæ og samræmd þeirri áætlun sem það er í gildi. Búið er að leggja áætlunina fyrir allar nefndir félagsins sem samþykktu hana athugasemdarlaust. Hér með lagt fyrir og samþykkt samhljóða.
Boðsgestir á árshátíð HarðarEins og löng hefð er fyrir buðum við Bæjarstjórn og Bæjarráði Mosfellsbæjar á árshátíð félagsins. Óvenju fáir sáu sér fært að mæta, sem við skiljum vel þar sem ýmsar annir geta valdið því. Það sem er hins vegar nýtt er að fulltrúi M lista afþakkaði boðið þar sem „hann væri vanhæfur til að fjalla um málefni hestamannafélagsins í bæjarráði þæði hann boðið" Nokkrar umræður urðu um málið og í lok þeirra var samþykkt að - Aðalstjórn Harðar harmar þessa afstöðu og telur þvert á móti að það sé eitt af hlutverkum bæjarfulltrúa að þiggja slík boð á vegum félagasamtaka bæjarins og gefa sér þannig tíma til að spjalla við félagsmenn og blandast þeim á jafnréttisgrundvelli. Á slíkum stundum mannlegra samskipta skýrast oft mál og ólík sjónarmið, nýjar hugmyndir koma fram og fordómar leiðréttast. Við teljum þvert á móti að ókunnugleiki og vanþekking á málefnum félaga bæjarins leiði til vanhæfis til að taka á málefnum þeirra í bæjarráði, því eigi bæjarfulltrúar að nota öll þau tækifæri sem gefast til að kynnast félögunum og starfsemi þeirra, bæði í leik og starfi. Að ýja að því að slík boð hafi á einhvern hátt annan og annarlegan tilgang er beinlínis rangt og er særandi fyrir okkur sem leggjum metnað okkar í að reka góð íþrótta og tómstundafélög í bæjarfélaginu í sjálfboðavinnu. -
Lífstöltið
Hörður mun standa fyrir styrktarmóti í reiðhöllinni nú seinna í mánuðinum. Mótið verður veglegt að allri gerð og er búist við mikilli þátttöku. Einnig verður kaffisala, happdrætti og fleira í tengslum við mótið. Stefn er að því að safna hálfri til einni milljón til málefnisins. Öll innkoma af mótinu mun renna til Líf, styrktarfélags Landsspítalans.
Árshátíð, uppgjörÁrshátíðin sem fram fór í Hlégarði tókst vel, rétt um 100 manns mættu og skemmtu sér fram eftir nóttu. Um 80.000.- króna afgangur / hagnaður varð af árshátíðinni sem ákveðið var að rynnu í stækkunarsjóð Harðarbóls, það er rökrétt þar sem við stefnum á að geta haldið árshátíðir félagsins þar þegar félagsheimilið hefur verið stækkað. Folatollur að verðmæti 150.000.- krónum sem Sveinn Ingi og fjölskylda hans færðu félaginu á árshátíðinni sem þakklætisvott vegna framgöngu félagsins í kjölfar hesthúsabrunans renni einnig í stækkunarsjóð félagsins.
RT og SÓ falið að setja saman árshátíðarnefnd fyrir næsta ár.
Reiðhöll
Rekstur reiðhallarinnar gengur eftir væntingum, en notkun hennar er meiri en nokkurn óaði fyrir. Rekstur hennar er nokkurn vegin á núlli, en það bíður ekki mikið lengur að ráða starfsmann sem mun setja rekstur hennar, en þá mun fyrirsjáanlegt tap verða sem nemur launum hans. Við bindum þó vonir við að bæjarfélagið samþykki hækkun á leigu að því marki sem búið var að semja um, en þá mun rekstur hallarinnar verða í jafnvægi.
Vegur að Harðarbóli
Brýnt er að laga vegstæðið að Harðarbóli, en aðstæður þar eru beinlínis hættulegar. Í lok árs 2009, þegar reiðhöllin var opnuð var ákveðið að laga neðri hluta vegarins, en bíða með efri hlutann vegna kostnaðar fram á vorið. Það varð hins vegar ekki, en vonir eru bundnar við að það verði gert nú í vor.
Reiðhallarlán lengt
Mosfellsbær hefur leitað eftir því að fá lengja greiðslur vegna reiðhallarinnar um nokkur ár, enda mæti þeir öllum kostnaði vegna fjármögnunarinnar. Íslandsbanki er að reikna út áhrifin, vaxtakostnað og lánamöguleika.
Fleira var ekki gert og fundi slitið
Verkefnalisti stjórnar
- Fjáröflun, í gang ST
- Sölusýningar í reiðhöllinni ST, IM, GM
- Deiliskipulag hesthúsahverfisins GM
- Verklýsingar fyrir stjórn og nefndir GM, + allir
- Hönnun stækkun Harðarbóls GM
- Frágangur á vegstæði og svæðinu að reiðhöllinni GM
- Námsskrá fyrir hestabraut Framhaldsskólans GM
- Ný árshátíðarnefnd RT, SÓ
Verkefnalisti lokið
- Dagskrá vetrarins Allir
- Mosfellingur, dagskráin í næsta blað GM
- Halda Þorrablót þann 23. Janúar GB
- Senda út boðsmiða á árshátíð GM
- Halda árshátíð og afmælishátíð þann 27. Febrúar Ársh.nefnd og stjórn
- Senda út félagsgjöld GÝ
- Veltiskilti við Vesturlandsveg, ath.stöðu samnings GÁH, ST
- Panta pláss fyrir tjaldborg á Landsmóti ST
- Verkefnalisti fyrir vinnuflokk IM
- Ný númer fyrir vetrarkeppnir ST
- Kynna Felix fyrir nefndarmönnum GÁH
- Dómpallur (rauði skúrinn IM, SÓ og GB