Reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun
- Nánar
- Skrifað þann Föstudagur, janúar 28 2011 12:57
- Skrifað af Super User
Fyrir hverja er námskeiðið:
Öll börn og ungmenni sem eiga við einhvers konar fötlun eða skerta getu að stríða vegna sjúkdóma eða af öðrum ástæðum og sem hafa áhuga á að umgangast hesta eða vilja kynnast hestamennsku.
Markmið námskeiðsins:
- Eiga frábæra stund saman í skemmtilegur umhverfi
- Geti umgengist hesta af öryggi og óttaleysi
- Að kynnast hestinum og læra undirstöðuatriði í umhirðu hestsins.
- Lært undirstöðuatriði í reiðmennsku eftir getu hvers og eins
- Auka sjálfstæði og færni í samskiptum við hesta
- Að bæta líkamsvitund
- Að auka samhæfingu handa, fóta og skynfæra.
- Styrkja leiðtogahlutverk í samskiptum við hestinn.
Lagt er áhersla á fjölbreytni og að allir nemendur fái sem mest út úr námskeiðinu eftir þörfum hvers og eins.
Kennslan er í höndum reyndra leiðbeinanda með margra ára reynslu í reiðkennslu fatlaðra, sjúkraþjálfari verður til taks sem og aðrir aðstoðarmenn eftir þörfum.
Það sem er innifalið í námskeiðsgjaldi:
- Öll kennsla og kennslugögn
- Lagðir eru til hestar fyrir hvern og einn sem og allur útbúnaður til reiðar þar á meðal sérsmíðaðir hnakkar og annar útbúnaður eftir þörfum.
- Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðs.
Námskeiðsgjald er 18.000 kr.
Námskeið 1 : 19. september - 17. október
Mánudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn
19. sept, 26. sept, 3.okt, 10.okt, 17.okt.
Námskeið 2 : 23. september - 21. október
Föstudagar kl. 14:45 15:45. 5 skipti í senn
23.sept,30.sept,7.okt,14.okt,21.okt.
Námskeið 3 : 24.október - 21. nóvember
Mánudagar kl. 14:45 - 15:45 . 5 skipti í senn
24.okt,31.okt,7.nóv,14.nóv,21.nóv
Námskeið 4 : 28.október - 25.nóvember
Föstudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn
28.okt,4.nóv,11.nóv,18.nóv,25.nóv.
Frekari upplýsingar og skráning er hjá Auði G. Sigurðardóttur
s: 8997299/8986017
Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Umsjónarmaður námskeiðsins er Súsanna Ólafsdóttir, reiðkennari.