Ársreikningur 2020
- Nánar
- Skrifað þann Miðvikudagur, október 27 2021 19:12
- Skrifað af Sonja
NÁMSKEIÐIN
Vornámskeiðin voru enn lituð af áhrifum Kórónuveirunnar,Covid-19.
Töluvert var um sóttkví bæði hjá nemendum og sjálfboðaliðum. Nokkrir nemendur afskráðu sig vegna smitáhættu á miðju námskeiðstímabil. Þetta olli því að suma daga voru afar fáir nemendur og lítið var unnt að hagræða með því að færa nemendur til á milli daga, þar sem námskeiðin voru hafin, en nemendur okkar eru með mjög skipulagða dagskrá alla vikuna í öðrum tómstundum. Þetta reyndist starfinu mjög kostnaðarsamt, þar sem fasti kostnaðurinn hélst óbreyttur ásamt kostnaði við sóttvarnir.
Mikil eftirspurn var eftir helgarnámskeiði, en því miður höfum við enn bara tök á að halda eitt slíkt á laugardagsmorgnum, en það var tæplega þreföld umframeftirspurn eftir helgarnámskeiðum bæði á vorönn og haustönn.
Haustnámskeiðin fara vel af stað. Haustnámskeiðin 2021 fóru mjög vel af stað og er fullbókað á öll námskeiðin og komust færri að en vildu. Undanfarin ár hefur sjálfboðaliðastarfið gengið mjög vel og árið í ár er engin undantekning. Sjálfboðaliðar eru á öllum aldri, margir sem hafa verið í hestamennsku eða langar til að byrja og eignast hest. Það á sérstaklega við um krakka á aldrinum 13-18 ára, en þeim gefst kostur á að komast í reiðtúr á hestunum okkar, en við höfum reynt að hafa reiðtúrana okkar í hverri viku og stundum tvisvar til þess að allir fái tækifæri á að komast í reiðtúrana. Elma Benediktsdóttir sá að mestu leyti um reiðtúrana síðastliðið ár, en hún situr einnig í Fræðslunefnd fatlaðra.
Nýskráningar nemenda eru flestar hjá börnum og unglingum og yngsti nemandinn okkar er 4 ára en sá elsti yfir fertugt. Þátttakendur komu frá 6 sveitafélögum, aðallega frá Mosfellsbæ, Reykjavík og Hafnarfirði.
Við sjáum töluverðar framfarir hjá nemendum okkar og hafa sum þeirra haft getu til þess að taka þátt í reiðnámskeiðum sem haldin eru á sumrin hjá hestamannafélögunum. Einnig hafa þessi námskeið stuðlað að því að foreldrar sem stunda hestamennsku hafa í kjölfarið treyst sér til að fara í reiðtúra með barnið sitt.
Það er alltaf jafn ánægjulegt að segja frá því hversu frábærar móttökur og lof þetta starf fær, bæði frá þeim sem eru á námskeiðunum, en ekki síður frá aðstandendum og þeim sem fylgjast með starfinu. Flestir þátttakendur koma aftur og aftur og sumir taka þátt allan veturinn.
Foreldrar og umönnunaraðilar bera starfi okkar vel söguna og kynna reiðnámskeiðin sín á milli, það hefur haft í för með sér fjölgun á nýjum nemendum og færri komast að en vilja.
SJÁLFBOÐALIÐASTARF – öflugt og í öllum aldurshópum.
Án sjálfboðaliða væri ekkert starf fyrir fatlaða. Við erum í góðu samstarfi við grunnskólana í Mosfellsbæ, sem hafa kynnt sjálfboðaliðastarfið með okkur og boðið nemendum sínum að fá sjálfboðaliðastarfið metið sem valgrein. Þetta samstarf hefur verið okkur ómetanlegt og þátttaka ungra sjálfboðaliða er afar góð. Sjálfboðaliðahópurinn var mjög sterkur og öflugur og ánægjulegt að sjá einnig fjölgun í hópi fullorðna sjálfboðaliða, en við leggjum áherslu á, að á hverju námskeiði séu 4 fullorðnir ásamt yngri sjálfboðaliðum.
Í vetur var því miður ekki hægt að vera með sjálfboðaliðakvöldin, hvorki í upphafi námskeiða né í lok þeirra sökum Covid. Til stendur að halda sjálfboðaliðakvöld í nóvember og að venju verða sjálfboðaliðar leystir út með gjöfum í lok hverrar annar.
Sjálfboðaliðastarfið fer vel af stað í haust og höfum við aldrei haft jafnmarga sjálfboðaliða og nú.
TÆKIFÆRI TIL VAXTAR OG MARKAÐSETNINGU Á ÍSLENSKA HESTINUM
Agla Hendriksdóttir, formaður fræðslunefndar fatlaðra sendi inn hugmynd að verkefni fyrir nemendur í MPM námi við Háskólann í Reykjavík, skýrslunni var skilað í vor og mun vonandi nýtast vel. Markmiðið var að tryggja enn betur rekstrargrundvöll starfsins og vöxt þess, en mikilvægt er að fleiri sveitafélög en Mosfellsbær komi að verkefninu og önnur hestamannafélög veiti aðstöðu, svo hægt sé að efla starfsemina og koma henni sem víðast. Agla setti sig einnig í samband við þá sem sinna sambærilegu starfi erlendis í von um samstarf. Slíkt samstarf getur nýst víða í hestasamfélaginu en þetta er einstakt tækifæri til að markaðssetja fjölhæfni íslenska hestsins og hið einstaka geðslag hans.
Við viljum nota tækifærið og hvetja þá sem hafa áhuga og búa yfir hestakosti sem nýtist í þetta starf að setja sig í samband við okkur. Þörfin er til staðar.
ÞAKKLÆTI TIL STYRKTARAÐILA OG VELUNNARA.
Fræðslunefnd Harðar vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til allra þeirra aðila sem styrktu starfið á einn eða annan hátt. Einnig er það mjög þakkarvert að eiga góða að í hestasamfélaginu sjálfu.
Helgi í Blíðubakkahúsinu fær enn og aftur sérstakar þakkir fyrir að koma sjálfboðaliðastarfinu á framfæri við hestafólk í Blíðubakkahúsinu.
Heysalarnir okkar fá að sjálfsögðu þakkir fyrir að gefa af og til hey fyrir hestana, en Gulli Harðarfélagi hefur reynst okkur afar vel undanfarin ár, en Jón heysali á einnig þakkir skildar.
Því miður tókst ekki að afla styrkja vegna undirburðar umfram afsláttarkjara, en vonir standa til að úr rætist á komadi ári. Peningurinn sem kom við dósa og flöskusöfnun hefur að jafnaði verið nýttur til sjálfboðaliða en vegna Covid var lítið um söfnun á síðasta ári, en það sem safnaðist var nýtt upp upp í sóttvarnarkostnað, sbr. hanska, grímur og sótthreinsi fyrir búnaðinn.
Veiðivöruverslunin, Flugubúllan í Hlíðasmára styrkti starfið með grímum, en sá hluti hefði orðið verulega kostnaðarsamur fyrir okkur.
Á komandi ári þarf að endurnýja hjálma,beisli og tauma sem eru orðnir mjög slitnir, einnig þarf að fjölga stuðningsbeltum, þar sem nemendum hefur fjölgað. Leitað verður eftir stuðningi styrktaraðila, en einnig væri ánægjulegt ef að í hesthúsum Harðarfélaga leynist búnaður sem getur komið að góðum notum í starfinu okkar.
Í haust var ákveðið að fjölga í leiðbeinandahópnum í takt við fjölgun nemenda, en fram að þessu hefur einungis formaður getað leitt reiðnámskeiðin í fjarveru Fredricu Fagerlund reiðkennara og verið henni til stuðnings við að koma afar fötluðum einstaklingum á bak.
Lagðar voru inn styrkumsóknir fyrir komandi vetri m.a. til Rótarý í Mosfellsbæ og fengum við jákvæðar undirtektir, auk þess höfum við fengið nýja styrktaraðila sem ekki vilja láta nafns síns getið að svo stöddu. Við leggjum áherslu á að starfið sé rekið á þann hátt að útgjöld og skráningargjöld séu í lágmarki og nægir fjármunir séu til fyrir hverja námskeiðsönn svo hægt sé að halda starfseminni áfram. Það er ekki markmið með þessari starfsemi að hún skili hagnaði.
Við þökkum öllum þeim sem hafa lagt málefninu lið kærlega fyrir og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.
f.h. Fræðslunefndar fatlaðra.
Agla Elísabet Hendriksdóttir, formaður.
Í stjórn Félags hesthúsaeigenda á Varmárbökkum á Varmárbökkum 2020 sátu:
Júlíus Ármann formaður
Þóra A. Sigmundsdóttir gjaldkeri
Björk Magnúsdóttir ritari
Herdís Hjaltadóttir meðstjórnandi
Kjörinn endurskoðandi: Erna Arnardóttir
Tilgangur félagsins er að gæta sameiginlegra hagsmuna félagsmanna hvað varðar hesthús á svæðinu og stuðla að ýmsum félagslegum umbótum. Í samningi Mosfellsbæjar og Félags hesthúsaeigenda á Varmárbökkum frá 5. nóvember 2001 kemur fram að félagið hafi áfram til ársins 2023 réttindi sem lóðarhafi að sameiginlegu svæði hesthúsaeigenda á Varmárbökkum til sameiginlegra þarfa þeirra. Samkvæmt 11. gr. samningsins framlengist hann um fimm ár í senn, sé honum ekki sagt upp með eins árs fyrirvara. Forsenda fyrir úthlutun svæðisins til félagsins er að félagið standi opið öllum hesthúsaeigendum á svæðinu og þeir geti nýtt alla aðstöðu á svæðinu eins og um sameign þeirra sé að ræða á grundvelli hliðstæðra reglna og kveðið er á um í lögum um fjöleignarhús, enda skulu þeir vera félagar í Félagi hesthúsaeigenda. Félagið skuldbindur sig til þess að hafa eftirlit með því að hesthúseigendur fullnægi skilmálum um umgengni og þrifnað í hesthúsahverfinu samkvæmt skipulags- og byggingarskilmálum fyrir hverfið, lóðaleigusamninga og samþykkt nr. 238/997. Verði félagsmenn ekki við tilmælum félagsins um umgengni, skal félagið leita til bæjarins, sem þá skal beita tiltækum úrræðum til bóta. Gegn þessum skilmálum greiðir félagið ekki lóðarleigu til Mosfellsbæjar.
Á starfsárinu 2020 voru haldnir þrír stjórnarfundir. Vegna fordæmalausra aðstæðna í samfélaginu vegna veirunnar Covid-19 voru ekki haldnir hefðbundnir stjórnarfundir og framan af fóru samskipti fram í gegnum tölvupóst og síma varðandi fyrirliggjandi verkefni. Vegna aðstæðna dróst að halda aðalfund félagsins vegna fjöldatakmarkana en þegar færi gafst var gætt að fjarlægðarmörkum og smitvörnum.
Sjúkragerðið er á vegum félagsins og hafa Júlíus og Herdís séð um það og liðsinnt þeim sem á því hafa þurft að halda fyrir veik og slösuð hross.
Hringgerðin eru í eigu og umsjón félagsins. Kvörtun barst um vatnsaga í gerðunum vegna þess að mölin sópast til hliðanna og lokar fyrir afrennsli. Verktaki var fenginn til að draga mölina aftur inn á miðju og gera vatnsrákir til að vatnið renni frá. Þá setti Magnús Ingi lamir á hliðin í gerðunum.
Líkt og undangengin ár sá félagið til þess að trjágróður á svæðinu væri snyrtur.
Félaginu bárust kvartanir vegna gáma og vörubílspalla sem notaðir eru sem taðþrær í hesthúsahverfinu og í framhaldinu sendi félagið fyrirspurn á þá sem við átti varðandi frekari fyrirætlanir.
Nokkrar umræður urðu um hvaða verklag félagið eigi að viðhafa við að sjá til þess að félagsmenn gangi vel um hesthús sín og nærumhverfi. Til hliðsjónar eru; samningur félagsins við Mosfellsbæ um hesthúsahverfið á Varmárbökkum, samþykkt um umgengni og þrifnað í hverfinu nr. 283/1997 samþykktar af Umhverfisráðuneytinu og lóðarleigusamningar.
Júlíus Ármann
Formáli
Formaður Æskulýðsnefndar 2020-2021 var Bryndís Ásmundsdóttir en með henni í nefnd voru þær Aðalheiður G. Halldórsdóttir, Hrafnhildur Jóhannesdóttir, Halldóra Sif Guðlaugsdóttir, Kristín Tryggvadóttir og Randy Baldvina Friðjónsdóttir.
Nefndin starfar í samstarfi við Sonju Noack sem sér um námskeiðahald og annað utan umhald fyrir félagið.
Kynningar viðburða fór fram í gegnum heimaísðu félagsins og í gegnum FB síðu Æskulýðsnefndar.
Æskan og hesturinn/ sýning í Herði
Undirbúningur var í gangi og var von okkar um að við gætum haldi viðburðinn Æskan og hesturinn. En því miður frestaðist hann vegna Covid 19. Fredrica Fagerlund hélt utan um þennan undirbúning sem að var fimleikar á hestum. Í staðinn fyrir æskan og hesturinn var haldin sýning fór fram þann 17. Maí. Krakkarnir buðu fjölskyldu og vinum á sýninguna sem tókst vel.
Þökkum Fredricu Fagurlund fyrir hennar þátt í undirbúningi.
Pákafitness
Við héldum upp á páskafitness í mars þar sem að fjörutíu og átta krakkar tóku þátt. Við vorum með fullt af frumlegum og skemmtilegum leikjum. Svo í lokinn fengu allir vegleg verðlaun sem að var páskaegg.
Fjölskylduferð á Hraðastaði
Við ákvöðum að halda fjölskylduferð á Hraðastaði. það voru nokkrir hugrakkir sem riðu upp eftir í grenjandi rigningu. Við grilluðum pylsur, fengum safa og prinspóló. Þetta var skemmtileg ferð.
Uppskeruhátíð 2021
Uppskeruhátíð verður haldin 18. Okt 2021 við í nefnd höfum skipulagt skemmtilegt kvöld fyrir krakkanna. Veðum m.a. með góðan mat, skemmtiatriði þar sem Einar Aron töframaður sýnir okkur töfra og svo verðlaunaafhendingu fyrir stigahæðstu knapa félagsins
Í barnaflokk voru það
unglingaflokk voru það
Í ungmennaflokk voru það
Einnig varð Benedikt Ólafsson Reykjavíkurmeistari og Íslandsmeistari í Gæðingaskeiði á Leiru Björk frá Naustum
Aðrir viðburðir
Því miður náðist ekki að halda fleirri viðburði þetta árið vegna samkomu takmarkanna vegna Covid 19 og því miður var ekki haldinn uppskeruhátíð né þrif á reiðtygjum og fjölskyldu ratleikur sem að hafði verið skipulagður.
Lokaorð
Árið 2020-21 var því miður litað af samkomu takmörkunum. En við vonum að árið 2022 verði betra. Vonum að þeir sem starfi í nefnd haldi áfram að láta starfið blómstra eins og hefur verið undanfarin ár þrátt fyrir miklar takmarkanir.
Fyrir hönd æskulýðsnefndar skilar hér formaður æskulýðsnefndar Bryndís Ásmundsdóttir árskýrslu nefndar.