Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Skráning á námskeið æskulýðsnefndar

2. janúar 2014 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Búið er að opna fyrir skráningar á námskeið æskulýðsnefndar.

Skráning skal eiga sér stað í gegnum Sportfeng (velja skráningarkerfi):

http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

Velja námskeið – Velja hestamannafélag (Hörður) – Skrá kennitölu þátttakanda – (Ef kennitala ekki í félagaskrá, þarf að fara inná www.hordur.is og sækja um aðild) – Velja atburð (og hóp ef fleiri en einn hópur) – Setja í körfu

Ganga frá greiðslu (ef nota skal frístundaávísun, skal fara inná Íbúagátt síns sveitarfélags og ráðstafa til Hestamannafélagsins Harðar) – Fylla inn upplýsingar um greiðanda (ef frístundaávísun, skal setja í athugasemdir, reikningsnúmer sem má millifæra á) – Velja greiðslufyrirkomulag: Greiðslukort eða millifærsla. Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafi borist. Ef frístundaávísun er send til félagsins, mun félagið endurgreiða viðkomandi þegar greiðsla berst frá sveitarfélaginu.

Aðstoð við skráning á námskeiðin er hjá Rúnari í síma 861-4000 og netfangi runar@hrimnir.is . Nánari upplýsingar um námskeiðin hjá viðkomandi kennara.