Í mótanefnd sátu eftirtaldir aðilar veturinn 2025-2026:
Sigurður H. Örnólfsson, formaður
Tara Lovísa Karlsdóttir
Hildur Ösp Vignisdóttir
Vilhjálmur Þorgrímsson
Stefanía Vilhjálmsdóttir
Benedikt Ólafsson
Lára Ösp Oliversdóttir, tengiliður stjórnar
Vetrarmót Að vanda voru vetrarmótin vel sótt og ávallt ánægjulegt að sjá hversu margir taka þátt. Á fyrsta móti vetrarins, sem haldið var 24. janúar, voru alls 56 skráningar. Annað mótið var Grímutöltið, styrkt af Fiskbúð Mosfellsbæjar, þar sem 56 knapar mættu til leiks í hinum ýmsu búningum. Síðasta mótið var haldið 14. mars og var það fjölmennasta mótið í röðinni, en alls tóku 61 knapi þátt.
Eftirtaldir aðilar báru sigur úr býtum í vetrarmótaröðinni 2026:
Barnaflokkur: Bryanna Heaven Brynjarsdóttir
Unglingaflokkur: Sigríður Fjóla Aradóttir
Ungmennaflokkur: Tara Lovísa Karlsdóttir
Fullorðinsflokkur, 3. flokkur: Harpa Groiss
Fullorðinsflokkur, 2. flokkur: Kristinn Karl Garðarsson
Fullorðinsflokkur, 1. flokkur: Sonja Noack
Opin tölumót Boðið var upp á þrjú tölumót samhliða vetrarmótunum, líkt og síðustu tvö ár. Þar gátu knapar riðið íþróttagreinar og fengið einkunnir og umsagnir frá þremur dómurum. Boðið var upp á greinarnar T1, T2, V1 og F1 á öllum mótum. Markmiðið með tölumótunum hefur verið að veita keppendum tækifæri til að fá faglegt mat á sér og hestum sínum án þess að taka þátt í eiginlegri keppni. Skráning á þessi mót var þó fremur dræm og varð að lokum að aflýsa síðasta mótinu vegna ónógrar þátttöku.
Mosfellsbæjarmót Harðar Mosfellsbæjarmót Harðar var haldið dagana 15.-17. maí. Alls voru 313 skráningar á mótið sem gekk mjög vel í alla staði. Keppni var öflug í öllum flokkum og þátttaka góð.
Gæðingamót og úrtaka fyrir Landsmót Líkt og undanfarin ár var haldin tvöföld úrtaka fyrir Landsmót. Fyrri úrtakan fór fram 9. júní og sú síðari 12. júní. Betri árangur knapa úr hvorri úrtöku gilti til þátttöku á Landsmóti.
Að þessu sinni, líkt og áður, átti Hörður glæsilegan hóp keppenda á Landsmóti og má vera stoltur af sínum fulltrúum.
Lokaorð Mótanefnd er ánægð með starf vetrarins og þá góðu þátttöku sem einkenndi flest þau mót sem haldin voru á vegum félagsins. Ljóst er að metnaður og áhugi félagsmanna fyrir keppni og þjálfun er áfram mikill, sem endurspeglast í góðri mætingu á bæði vetrarmót og önnur keppnismót á vegum Harðar. Mótanefnd vill færa öllum þeim sem komu að framkvæmd móta á árinu sínar bestu þakkir. Sérstakar þakkir fá dómarar, starfsfólk móta, sjálfboðaliðar, styrktaraðilar og stjórn Harðar fyrir gott samstarf og ómetanlegt framlag. Án þessara aðila væri ekki unnt að halda úti jafn öflugu mótahaldi og raun ber vitni. Einnig vill nefndin þakka öllum keppendum, foreldrum, aðstandendum og áhorfendum fyrir þátttöku og stuðning við starfið. Það er samvinna þessa öfluga hóps sem skapar þá góðu stemningu og þann félagsanda sem einkennir mótahald hjá Harði.
Fyrir hönd mótanefndar, Sigurður H. Örnólfsson Formaður mótanefndar Harðar 2026
Skýrsla mótanefndar fyrir veturinn 2025-2026
Í mótanefnd sátu eftirtaldir aðilar veturinn 2025-2026:
Vetrarmót
Að vanda voru vetrarmótin vel sótt og ávallt ánægjulegt að sjá hversu margir taka þátt.
Á fyrsta móti vetrarins, sem haldið var 24. janúar, voru alls 56 skráningar. Annað mótið
var Grímutöltið, styrkt af Fiskbúð Mosfellsbæjar, þar sem 56 knapar mættu til leiks í
hinum ýmsu búningum. Síðasta mótið var haldið 14. mars og var það fjölmennasta
mótið í röðinni, en alls tóku 61 knapi þátt.
Eftirtaldir aðilar báru sigur úr býtum í vetrarmótaröðinni 2026:
Opin tölumót
Boðið var upp á þrjú tölumót samhliða vetrarmótunum, líkt og síðustu tvö ár. Þar gátu
knapar riðið íþróttagreinar og fengið einkunnir og umsagnir frá þremur dómurum. Boðið
var upp á greinarnar T1, T2, V1 og F1 á öllum mótum.
Markmiðið með tölumótunum hefur verið að veita keppendum tækifæri til að fá faglegt
mat á sér og hestum sínum án þess að taka þátt í eiginlegri keppni. Skráning á þessi mót
var þó fremur dræm og varð að lokum að aflýsa síðasta mótinu vegna ónógrar þátttöku.
Mosfellsbæjarmót Harðar
Mosfellsbæjarmót Harðar var haldið dagana 15.-17. maí. Alls voru 313 skráningar á
mótið sem gekk mjög vel í alla staði. Keppni var öflug í öllum flokkum og þátttaka góð.
Gæðingamót og úrtaka fyrir Landsmót
Líkt og undanfarin ár var haldin tvöföld úrtaka fyrir Landsmót. Fyrri úrtakan fór fram 9.
júní og sú síðari 12. júní. Betri árangur knapa úr hvorri úrtöku gilti til þátttöku á
Landsmóti.
Að þessu sinni, líkt og áður, átti Hörður glæsilegan hóp keppenda á Landsmóti og má
vera stoltur af sínum fulltrúum.
Lokaorð
Mótanefnd er ánægð með starf vetrarins og þá góðu þátttöku sem einkenndi flest þau
mót sem haldin voru á vegum félagsins. Ljóst er að metnaður og áhugi félagsmanna fyrir
keppni og þjálfun er áfram mikill, sem endurspeglast í góðri mætingu á bæði vetrarmót
og önnur keppnismót á vegum Harðar.
Mótanefnd vill færa öllum þeim sem komu að framkvæmd móta á árinu sínar bestu
þakkir. Sérstakar þakkir fá dómarar, starfsfólk móta, sjálfboðaliðar, styrktaraðilar og
stjórn Harðar fyrir gott samstarf og ómetanlegt framlag. Án þessara aðila væri ekki unnt
að halda úti jafn öflugu mótahaldi og raun ber vitni.
Einnig vill nefndin þakka öllum keppendum, foreldrum, aðstandendum og áhorfendum
fyrir þátttöku og stuðning við starfið. Það er samvinna þessa öfluga hóps sem skapar þá
góðu stemningu og þann félagsanda sem einkennir mótahald hjá Harði.
Fyrir hönd mótanefndar,
Sigurður H. Örnólfsson
Formaður mótanefndar Harðar
2026
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn