Stóla vantar

Þó ótrúlegt megi virðast þá vantar ca 10 stóla úr Harðarbóli. Þeir eru eins og flestir vita hvítir með bláum sessum og bökum. Þeir sem eitthvað vita um afdrif þessara stóla endilega hafið samband við Rósu í síma 863-7432

Reykjavíkurmeistaramót Fáks 2003

Reykjavíkurmeistaramót verður haldið 8.-11. maí nk. á félagssvæði Fáks Skráning verður föstudaginn 2. maí Fáks, frá klukkan 17:00 til 19:00 og mánudaginn 5. maí frá 18:00 til 20:00 í félagsheimili Fáks og einnig í síma 567-2166 gegn greiðslukorti. Mótið er opið World Ranking mót. Keppt verður í meistaraflokki, 1. flokki, 2. flokki og ungmenna-, unglinga- og barnaflokkum í helstu greinum hestaíþrótta. Skráningargjald er 3500 krónur fyrir fullorðna, 2000 krónur fyrir ungmenni og 1500 krónur fyrir unglinga og börn. Einstaklingur greiðir eingöngu fyrir fyrstu þrjár greinarnar, greinar umfram það eru fríar. Allir hestar þurfa að vera grunnskráðir í Feng. Íþróttadeild Fáks áskilur sér rétt til að fella niður greinar ef ekki fæst nægjanleg þátttaka. Nánari upplýsingar um dagskrá verða birtar síðar. Með kveðju, Íþróttadeild Fáks

Ásláksmót Harðar 2003 - Úrslit

Pollar (ekki var raðað í sæti) Arnar Logi Lúthersson, Gráni 10 vetra grár frá Flugumýri. Halla Margrét Hinriksdóttir, Dísa 10 vetra Bleikálótt frá Keldulandi Hrafndís Katla Elíasdóttir, Smartfari 14 vetra Brúnn Margrét Sæunn Axelsdóttir, Freyr jarpur Sunneva Rut Valgeirsdóttir

Nánar...

Get ég fengið far??

Mig vantar far fyrir einn hest á kvennatöltið 30.apríl. Ef að einhver er að fara og hefur pláss fyrir einn hest og þá hugsanlega knapa líka þá væri það mjög gott. Kveðja, Íris Fríða sími: 6955770

Geldýna tapaðist

Geldýna tapaðist á leiðinni uppí Mosfellsdal á föstud.langa. Síðast sást til hennar í brekkunni við Köldukvíslarbrúna, en hún reyndist ekki vera þar þegar ég kom til baka. Skilvís finnandi hringi í Óla í 897-3030 Flugubakka 8 - miðju.