Reykjavíkurmeistaramót Fáks 2003

Reykjavíkurmeistaramót verður haldið 8.-11. maí nk. á félagssvæði Fáks Skráning verður föstudaginn 2. maí Fáks, frá klukkan 17:00 til 19:00 og mánudaginn 5. maí frá 18:00 til 20:00 í félagsheimili Fáks og einnig í síma 567-2166 gegn greiðslukorti. Mótið er opið World Ranking mót. Keppt verður í meistaraflokki, 1. flokki, 2. flokki og ungmenna-, unglinga- og barnaflokkum í helstu greinum hestaíþrótta. Skráningargjald er 3500 krónur fyrir fullorðna, 2000 krónur fyrir ungmenni og 1500 krónur fyrir unglinga og börn. Einstaklingur greiðir eingöngu fyrir fyrstu þrjár greinarnar, greinar umfram það eru fríar. Allir hestar þurfa að vera grunnskráðir í Feng. Íþróttadeild Fáks áskilur sér rétt til að fella niður greinar ef ekki fæst nægjanleg þátttaka. Nánari upplýsingar um dagskrá verða birtar síðar. Með kveðju, Íþróttadeild Fáks