Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Uppskeruhátíð æskulýðs Harðar

Uppskeruhátíð æskulýðs Harðar

18. október 2026 Skrifstofa Harðar Comments Off

Uppskeruhátíð æskulýðs Harðar verður haldin sunnudaginn 8. nóvember kl. 17:00 í Harðarbóli.

🐴

Það verða veitt verðlaun fyrir besta keppnisárangur ársins í barna-, unglinga- og ungmennaflokki. ATH! Það þarf að senda keppnisárangur knapa á netfangið hordur@hordur.is fyrir 1.11.2026. Upplýsingar og reglur varðandi keppnisárangur má finna hér: https://hordur.is/3712-uppfaerdh-vidhmidh-til-afreksverdhlauna-hardhar/ Eftir viðurkenningarathöfnina ætlum við svo að eiga skemmtilegt kvöld saman, þar sem við spilum, borðum pizzu og fáum okkur eitthvað gott með.

🍕
🎲

Við hvetjum alla til að koma og gleðjast með okkur. Einnig hvetjum við alla sem eru nýir að kíkja við, sem og að bjóða vinum sem eru í hestum í Herði að koma og kynnast okkur. Þetta verður skemmtilegt kvöld! Kveðja, æskulýðsnefndin