Suðurlandsmót í hestaíþróttum

Sigurður Sigurðarson stóð sig vel á Suðurlandsmótinu um helgina, vann tölt – meistaraflokk á Hyllingu frá Kimbastöðum og vann bæði meistaraflokk – gæðingaskeið og 250m skeið á Fölva frá Hafsteinsstöðum. Það að auki var hann annar í tölti - 1. flokk á Hákoni frá Kjartansstöðum, fimmti í 1. flokk - fimmgang á Dróma frá Bakka, annar í 1. flokk - gæðingaskeiði á Gilli frá Keflavík, þriðji í slaktaumatölti -1. flokk á Úlf frá Hjaltastöðum, fjórði í fimmgang – meistaraflokk á Gilli frá Keflavík og fjórði í fljúgandi skeiði á Fölva frá Hafsteinsstöðum. Kristján Magnússon var annar í gæðingaskeiði ungmenna og sjötti í fljúgandi skeiði á Eld frá Vallanesi, annar í fjórgang ungmenna og fjórði í tölti ungmenna á Hlökk frá Meiritungu og fjórði í fimmgang ungmenna á Skolla frá Hindisvík Ásta B. Benediktsdóttir var þriðja í tölti 2. flokks á Snót frá Akureyri og Diljá Óladóttir varð í fimmta sæti á Klökk frá Kiðafelli í sama flokki. Jóhanna Jónsdóttir varð sjötta í tölti barna og tíunda í fjórgangi barna á hestinum Darra frá Akureyri og Linda Pétursdóttir varð önnur í fjórgang unglinga og sjötta í tölti unglinga á Háfeta frá Þingnesi. Ragnhildur Haraldsdóttir varð önnur í fimmgang unglinga á Nagla frá Árbæ.