Reiðnámskeið hjá Friðdóru Friðriksdóttur

BETRI ÁRANGUR MEÐ BÆTTRI REIÐMENNSKU! Markmið námskeiðs: Uppbygging og þjálfun hvort heldur er á reiðhesti eða keppnishesti í byrjun vetrar. Bæta ásetu, taumhald og samspil ábendinga. Nemandi geti haft meiri áhrif á gangtegundir og ráðið hraða og stefnu. Aukinn skilningur á grunnþáttum reiðmennsku og notkun fimiæfinga. Skráning á námskeiðið verður mánudaginn 31.janúar næskomandi milli kl 18:00 og 20:00, verð á námskeið kr 10.000,- fyrir félagsmenn Harðar og 18.000,-fyrir utanfélagsmenn.6-8 kennslustundir(1 bóklegur tími) 5 manns í hóp, hópaskipt eftir getu hvers og eins. Námskeiðin hefjast í byrjun febrúar.(nánari dagssetning auglýst síðar) Kveðja Fræðslunefnd Harðar.