Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Skýrsla mótanefndar fyrir veturinn 2025-2026

Skýrsla mótanefndar fyrir veturinn 2025-2026

16. nóvember 2026 Skrifstofa Harðar Comments Off


Í mótanefnd sátu eftirtaldir aðilar veturinn 2025-2026:

  • Sigurður H. Örnólfsson, formaður
  • Tara Lovísa Karlsdóttir
  • Hildur Ösp Vignisdóttir
  • Vilhjálmur Þorgrímsson
  • Stefanía Vilhjálmsdóttir
  • Benedikt Ólafsson
  • Lára Ösp Oliversdóttir, tengiliður stjórnar

    Vetrarmót
    Að vanda voru vetrarmótin vel sótt og ávallt ánægjulegt að sjá hversu margir taka þátt.
    Á fyrsta móti vetrarins, sem haldið var 24. janúar, voru alls 56 skráningar. Annað mótið
    var Grímutöltið, styrkt af Fiskbúð Mosfellsbæjar, þar sem 56 knapar mættu til leiks í
    hinum ýmsu búningum. Síðasta mótið var haldið 14. mars og var það fjölmennasta
    mótið í röðinni, en alls tóku 61 knapi þátt.

    Eftirtaldir aðilar báru sigur úr býtum í vetrarmótaröðinni 2026:
  • Barnaflokkur: Bryanna Heaven Brynjarsdóttir
  • Unglingaflokkur: Sigríður Fjóla Aradóttir
  • Ungmennaflokkur: Tara Lovísa Karlsdóttir
  • Fullorðinsflokkur, 3. flokkur: Harpa Groiss
  • Fullorðinsflokkur, 2. flokkur: Kristinn Karl Garðarsson
  • Fullorðinsflokkur, 1. flokkur: Sonja Noack

    Opin tölumót
    Boðið var upp á þrjú tölumót samhliða vetrarmótunum, líkt og síðustu tvö ár. Þar gátu
    knapar riðið íþróttagreinar og fengið einkunnir og umsagnir frá þremur dómurum. Boðið
    var upp á greinarnar T1, T2, V1 og F1 á öllum mótum.
    Markmiðið með tölumótunum hefur verið að veita keppendum tækifæri til að fá faglegt
    mat á sér og hestum sínum án þess að taka þátt í eiginlegri keppni. Skráning á þessi mót
    var þó fremur dræm og varð að lokum að aflýsa síðasta mótinu vegna ónógrar þátttöku.

    Mosfellsbæjarmót Harðar
    Mosfellsbæjarmót Harðar var haldið dagana 15.-17. maí. Alls voru 313 skráningar á
    mótið sem gekk mjög vel í alla staði. Keppni var öflug í öllum flokkum og þátttaka góð.

    Gæðingamót og úrtaka fyrir Landsmót
    Líkt og undanfarin ár var haldin tvöföld úrtaka fyrir Landsmót. Fyrri úrtakan fór fram 9.
    júní og sú síðari 12. júní. Betri árangur knapa úr hvorri úrtöku gilti til þátttöku á
    Landsmóti.

    Að þessu sinni, líkt og áður, átti Hörður glæsilegan hóp keppenda á Landsmóti og má
    vera stoltur af sínum fulltrúum.

    Lokaorð
    Mótanefnd er ánægð með starf vetrarins og þá góðu þátttöku sem einkenndi flest þau
    mót sem haldin voru á vegum félagsins. Ljóst er að metnaður og áhugi félagsmanna fyrir
    keppni og þjálfun er áfram mikill, sem endurspeglast í góðri mætingu á bæði vetrarmót
    og önnur keppnismót á vegum Harðar.
    Mótanefnd vill færa öllum þeim sem komu að framkvæmd móta á árinu sínar bestu
    þakkir. Sérstakar þakkir fá dómarar, starfsfólk móta, sjálfboðaliðar, styrktaraðilar og
    stjórn Harðar fyrir gott samstarf og ómetanlegt framlag. Án þessara aðila væri ekki unnt
    að halda úti jafn öflugu mótahaldi og raun ber vitni.
    Einnig vill nefndin þakka öllum keppendum, foreldrum, aðstandendum og áhorfendum
    fyrir þátttöku og stuðning við starfið. Það er samvinna þessa öfluga hóps sem skapar þá
    góðu stemningu og þann félagsanda sem einkennir mótahald hjá Harði.

    Fyrir hönd mótanefndar,
    Sigurður H. Örnólfsson
    Formaður mótanefndar Harðar
    2026