Nýjung í starfi hestamannafélagsins Harðar á næsta tímabili verður afrekshópur yngri flokka! Hópurinn hefur þann tilgang að halda betur utan um þá knapa félagsins sem hafa sýnt góðan árangur á keppnisvellinum og samviskusemi og dugnað í þjálfun.
Markmið hópsins er að knapar sem uppfylla skilyrði inn í hópinn fái rými til að þroskast enn frekar í íþróttinni með markvissri verklegri og bóklegri kennslu. Iðkendur hópsins fá einstaklingsmiðaða kennslu yfir veturinn hjá fjölbreyttum kennurum með það markmið að undirbúa keppendur fyrir þátttöku á stórmótum.
Hugmyndin með hópnum er að hann sé hvatning fyrir knapa í yngri flokkum, stuðli að markmiðasetningu og efli afreksstarf félagsins.
Yfirreiðkennari sér um utanumhald hópsins í samráði við stjórn félagsins og er ábyrgðarmaður. Hann fer jafnframt yfir umsóknir og velur í hópinn í samstarfi við stjórnina.
Inntökuskilyrði inn í afrekshóp Harðar 2027
Til að komast inn í hópinn þarf knapi að hafa staðist ákveðin skilyrði á síðasta tímabili. Knapar þurfa að hafa náð einhverju af eftirfarandi á keppnistímabilinu 2026:
– A-úrslitum á WR móti
– Úrslitum á Landsmóti (A- eða B-úrslit)
– Að vera hluti af hæfileikamótun LH
– Titlinum „Mosfellsbæjarmeistari“
Umsóknir inn í hópinn skulu berast á netfangið kennari@hordur.is fyrir 15.nóvember 2026. Þar þarf að koma fram fullt nafn knapa og forráðamanna, árangur knapa og mót sem viðkomandi árangri var náð á. Ef vafi liggur á um hvort að árangur teljist gildur hvetjum við knapa til að senda inn umsókn. Aldur inn í hópinn miðast við 21 árs og yngri, knapar í ungmenna-, unglinga- og barnaflokk.
Skilyrði þess að vera í hópnum
Gerðar eru töluverðar kröfur til knapa í afrekshóp Harðar. Knapar skulu mæta í alla þá reiðtíma og bóklega kennslu sem sett er fyrir í upphafi tímabils. Ef eitthvað kemur upp á eða knapi sér sér ekki fært að mæta ber honum skylda að láta yfirreiðkennara vita tímanlega og skilgreina ástæðu forfalla.
Knapar skulu taka virkan þátt í kennslunni og taka þátt í að minnsta kosti einni grein í hverju móti á vegum félagsins á keppnistímabilinu nema að um annað sé samið í samráði við yfirreiðkennara. Einnig skulu knapar taka þátt á að minnsta kosti tveim stórmótum (WR) á tímabilinu.
Sé eitthvað af þessum skilyrðum ekki uppfyllt áskilur ábyrgðarmaður hópsins í samráði við stjórn sér rétt á að vísa nemendum úr hópnum það sem eftir er af tímabilinu.
Knapar skulu sýna umsjónarmönnum, kennurum og öðrum í hópnum kurteisi og virðingu í hvívetna og tileinka sér siðareglur Harðar og þær samskiptareglur sem félög innan ÍSÍ ástunda.
Forráðamenn/foreldrar gegna mikilvægu hlutverki og verður náið samstarf haft við þá og þeirra skyldur tilgreindar.
Athugið að iðkendur standa sjálfir straum af kostnaði við skráningu á mót og flutning á hestum.
Yfirkennari og stjórn áskilja sér rétt til að aðlaga og breyta skilyrðum og fyrirkomulagi að loknu þessu tímabili.
Fyrirkomulag kennslu
Kennarar:
Fredrica Fagerlund
Þórarinn Ragnarsson
Fyrirkomulag kennslu er þannig að hver knapi er í 30 mín einkatímum aðra hverja viku hjá Fredricu, tímar hefjast 11.janúar.
Þrjú æfingamót verða haldin á tímabilinu sem knöpum ber skylda að taka þátt í
Fredrica verður með tvær sýnikennslur yfir tímabilið fyrir hópinn
Ath. Dagsetningar á sýnikennslum og æfingamótum verða birtar síðar
Fjórar bóklegar kennslur
– 16.desember Markmiðasetning með Hinna Sig
– 9. Janúar Knapaþjálfun með Bergrúnu
o Líkamsstöðugreining í framhaldinu og reiðtími með fókus á ásetu
– 22.janúra Fyrirlestur um fóðurfræði
– 26.febrúar Fyrirlestur um hreyfifræði
Nemendur fara í þrjár kennsluhelgar með Þórarni Ragnarssyni. Nemendur fá þá 45 mínútna einkatíma báða dagana. Fyrstu helgina mætir Þórarinn í Hörð og nemendur fá kennslu heima. Hinar tvær helgarnar fara nemendur austur í Vesturkot í kennslu. Í framhaldi verða Fredrica og Þórarinn í samskiptum með árangur nemenda.
Fyrirhugaðar dagsetningar kennsluhelga eru eftirfarandi:
– 6.-7.febrúar (Mosó)
– 20.-21.mars (Vesturkot)
– 24.-25.apríl (Vesturkot)
*Ath. að yfirreiðkennari áskilur sér rétt til að færa/breyta dagsetningum í samráði við reiðkennara. Nemendur verða þá látnir vita með fyrirvara.
Afrekshópur Harðar 2027

Verð fyrir allt tímabilið er 90.000kr á knapa
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn