Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Járninganámskeið með Leó Hauks!

11. september 2026 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

BIÐLISTI

 


Dagana 13.-14.nóvember verður haldið járninganámskeið með Leó Hauks.



Leó hefur starfað við járningar í fjölda ára og útskrifaðist í vor úr járningamanna skólanum á Hólum en það var jafnframt fyrsti árgangurinn sem útskrifaður var úr því námi. Leó hefur víðtæka reynslu af járningum en á þessu námskeiði verður markmiðið að fara í helstu atriði sem tengjast járningu og hófhirðu hrossa.



Námskeiðið eru tveir dagar en fyrri daginn er bókleg kennsla og sýnikennsla og seinni daginn er verkleg kennsla. Nemendur koma með eigin verkfæri og þurfa að hafa hest til umráða til að járna. Skeifur fylgja með. Bókleg kennsla fer fram í Harðarbóli.



Verklegri kennslu er háttað þannig að tveir og tveir eru saman með einn hest og járnað er bæði fyrir og eftir hádegi frá 09:00-17:00 undir handleiðslu kennara.



Takmarkaður fjöldi plássa er í boði svo um að gera að vera fljótur að skrá sig! Skráning er hafin inn á abler.io/shop/hfhordur



Verð: 24.500



Ath. Félagið áskilur sér rétt til að fella niður námskeið ef ekki næg þátttaka næst



Endilega hafið samband við kennari@hordur.is ef spurningar vakna