Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Uppskeruhátíð æskulýðsnefnd Harðar

19. október 2025 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Uppskeruhátíð æskulýðs Harðar verður haldin sunnudaginn 16. Nóvember kl.17:00 í Harðarbóli.

Það verða veitt verðlaun fyrir besta keppnisárangur ársins í barna-, unglinga- og ungmennaflokki.

ATH! Það þarf að senda keppnisárangur knapa á netfangið: hordur@hordur.is fyrir 9.11.2025

Upplýsingar og reglur varðandi keppnisárangur má finna hér: 

Uppfærð viðmið til afreksverðlauna Harðar

Eftir viðurkenningarathöfnina ætlum við svo að eiga skemmtilegt kvöld saman, þar sem við spilum, borðum pizzu og fáum okkur eitthvað gott með.

Við hvetjum alla til að koma og og gleðjast með okkur. Einnig hvetjum við alla sem eru nýjir að kíkja við, sem og að bjóða vinum sem eru í hestunum í Herði að koma og kynnast okkur.

Þetta verður skemmtilegt kvöld!

Kveðja, æskulýðsnefndin.

564728003_10234304003835518_2401773686301433400_n.jpg