Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Til félaga í Hestamannafélaginu Herði – heyefnagreiningu

5. febrúar 2025 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Við bjóðum uppá heyefnagreiningar fyrir hestamenn. Tvennskonar, minni greining kostar 5630.- kr án vsk og stærri greining kostar 11332.- kr án vsk .  Minni greiningin er með orkuefnagreiningum (Meltanleiki, prótein, tréni, sykur, hestafóðureiningar) og útreikningum á heygjöf á dag pr hest útfrá ykkar heyi. Í stærri greiningunni bætist við helstu stein- og snefilefni.

Þið setjið heyið í poka (100-200 gr hvert sýni) fer eftir hversu þurrt heyið er.  Merkið með nafni, heimilisfangi, kt og tölvupóstfangi

Ég kem til ykkar á sunnudaginn 9. febrúar kl. 16:30 og verð við Reiðhöllina ykkar til kl 17:00. Verð á gráum Renault Koleos

Ef ykkur vantar nánari upplýsingar þá er síminn hjá mér 6612629 og tölvupóstfang beta@efnagreining.is

Meðfylgjandi er niðurstöðublað sem sýnir niðurstöður í stærri greiningu og einnig viðmið.

dæmi.jpg