Hestamannafélagið Hörður óskar eftir metnaðarfullum einstaklingi til að taka við umsjón á félagshesthúsi Harðar. Starfið er kjörið fyrir þá sem eru með mikla reynslu í hestum og hafa áhuga á að miðla þeirri þekkingu áfram til unga fólks, hafa þekkingu á námskeiðahaldi og færni í samskiptum. Um er að ræða hlutastarf greitt í tímavinnu og vinnutími er eftir samkomulagi. Reiknað er með fastri viðveru 2 tíma á viku. Ekki er um reiðkennslu að ræða.
Aldurstakmark er 20 ára.
Tímabilið er frá miðjum september til maí loka.
Helstu verkefni og ábyrgð:
– Umsjónaraðili sér um samskipti við þátttakendur félagshesthússins og aðstandendur þeirra
– Skipulag ýmissa viðburða í samstarfi við æskulýðsnefnd eins og hindrunarstökksnámskeið, ratleik, þrifadag og fleira.
– Hjálpa þáttakendum í félagshesthúsinu við allt tilfallandi í hesthúsinu. Allt frá að aðstoða við að fara í reiðtúr til að leiðbeina við skítmokstur, spónamagn og aðra umhirðu, meðferð reiðtygja og svo framvegis..
Áhugasamir hafi samband við Sonju í síma 8659651 eða á hordur@hordur.is sem allra fyrst.
Umsjónaraðili í félagshesthúsi óskast.

Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn