Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Vinna í hendi – námskeið 2024

13. desember 2023 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Vinna í hendi – námskeið – FULLT / Biðlista

6 skipti kennt á þriðjudögum kl.18:30 í Blíðubakkahöllinni.

Tíminn er í 45min – 2hópar í boði (1830 og 1915)

Fyrsti tími 16. Janúar

Farið verður í gegnum nokkrar mismunandi útfærslur af vinnu við hendi.

Vinna við hendi styrkir samband knapa og hests, eykur fjölbreytni í þjálfun, er liðkandi (fyrir bæði mann og hest) æfir stjórnun og samhæfingu og svo mætti lengi telja.

Vinna við hendi er líka frábær undirbúningur fyrir það sem koma skal á baki.

Kennari verður Ingunn Birna Ingólfsdóttir en hún er útskrifaður þjálfari og reiðkennari frá Hólum og að auki með áralanga reynslu af tamningum og þjálfun.

Verð: 18500 kr

4pláss á hóp

Skráning:  https://www.sportabler.com/shop/hfhordur

404995808_701626428733882_5460908165525863846_n.jpg