Stjórn langar að kalla saman alla þá sem hafa starfað í nefndum síðast liðið ár og vilja taka þátt í nefndastarfi með okkur næsta tímabil, til fundar klukkan 18 fimmtudaginn 12. október í Harðarbóli.
Tilgangurinn er að fara yfir starf nefndanna og stilla saman strengi fyrir starfið komandi starfsár og ræða almennt málin, borða saman og eiga skemmtilega stund.
Starfandi nefndir félagsins eru eftirfarandi:
– Æskulýðsnefnd
– Fræðslunefnd
– Mótanefnd
– Kynbótanefnd
– Fræðslunefnd fatlaðra
– Reiðveganefnd
– Árshátíðarnefnd
– Heldri menn og konur
– Hesthúseigendafélag
– Umhverfis og mannvirkjanefnd
– Kvennaferðanefnd
– Ferðanefnd (ómönnuð eins og er)
Við óskum eftir að fólk skrái sig í netfangið hordur@hordur.is , formenn nefnda skrá sitt fólk.
Nefndarkvöld
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn