Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Keppnisnámskeið 2023 börn /unglingar/ungmenni– Sigvaldi Lárus Guðmundsson

14. nóvember 2022 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Sýnikennsla fimmtudagur 12 jan kl 19:00

09 jan

16 jan

23 jan

30 jan

06 feb 

13 feb 

Keppnisnamskeið Harðar fyrir börn, unglinga og ungmenni rennur af stað í byrjun janúar og eru sex skipti til að byrja með og verða kennd á mánudögum.

Tilgangur námskeiðsins er að byggja upp bæði knapa og hest fyrir komandi keppnistímabil. Ásamt þessu verður farið í að aðstoða þáttakendur við þjálfun hestanna sinna, bæta jafnvægi og stjórnun ásamt ásetu og stjórnun knapa.

Námskeiðið er í boði fyrir bæði krakka með keppnisreynslu og líka þau sem eru að taka sín fyrstu skref í keppni.

Það verður sýnikennsla fimmtudag 12.janúar sem allir nemendur eiga helst að mæta (innifalið). Verkleg kennsla hefst mánudaginn 09. janúar. ATH: Hver knapi getur bara skrá sig með einum hesti, enn möguleiki að skrá sig á biðlista með hest númer 2 ef eitthvað losnar í gegnum hordur@hordur.is 

Kennari: Sigvaldi Lárus 

Sigvaldi er útskrifaður Reiðkennari frá Háskólanum á Hólum.

Hann hefur yfirgripsmikla reynslu af reiðkennslu hvort sem það er undirbúningur fyrir keppni eða að aðstoða við þjálfun hesta og knapa. Sigvaldi hefur m.a. starfað sem reiðkennari við Háskólann á Hólum, við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, kennt Reiðmanninn og er nú yfirreiðkennari Hæfileikamótunar LH fyrir krakka á aldrinum 14-17 ásamt því að hafa haldið reiðnámskeið hérlendis sem og erlendis.

Pláss fyrir 12 krakkar.

Verð 27.500 kr

Skráning opnar sunnudagurinn 20.11. Kl20:00 

Skráningafrestur 06.01.2023

Skráning: https://www.sportabler.com/shop/hfhordur

 

244526963_1291762097922538_8220037914295798349_n_1.jpg