Þá er Reykjavikurmeistaramóti 2020 lokið og voru Harðafélagar þar í toppsætum í nokkrum flokkum.
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir átti flottustu sýningu sem sést hefur á honum Óskari frá Breiðsstöðum í T2 með einkunnina 8.833 og sigrðuðu örugglega. Þau Aðalheiður og Óskar enduðu í 4.sæti í V1 með 7.733 og urðu samanlagðir sigurvegarar í fjórgangsgreinum í meistaraflokki. Aðalheiður og Kveikur frá Stangarlæk komu fram í fyrsta skipti í T1 enduðu í 6.sæti með 7,888. Frábær frammistaða hjá Aðalheiði Önnu
Halldór Snær Stefánsson og Sproti frá Ragnheiðarstöðum kepptu til úrslita í T7 í öðrum flokkui og enduðu þeir í 2-3 sæti með einkunnina 5,917.
Birgitta Ýr Bjarkadóttir og Gustur frá Yztafelli urðu í 5.sæti í T3 í ungmennaflokki með einkunnina 5,667.
Oddur Carl Arason og Órnir frá Gamla Hrauni kepptu til úrslita í fjórgangi í barnaflokki og enduðu í fjórða sæti með 6,433.
Benedikt Ólafsson keppti í öllum A úrslitum í unglingaflokki. Hann og Bikar frá Ólafshaga urðu í fjórða sæti í slaka taumnum með 6,83, þá komu úrslit í fimmgangi með Leiru-Björk frá Naustum en þau lentu í 3.sæti með 6,52 og sigruðu þau einnig gæðingaskæðið með 7,58. Benedikt og Biskup frá Ólafshaga hófu úrslitadaginn á því að sigra fjórganginn með 6,97 og svo skelltu þeir félagar sér aftur í brautina seinna um daginn og áttu glæsilega sýningu í tölti sem tryggði þeim fyrsta sætið með 7,57.
Benedikt Ólafsson og Leira-Björk sigruðu gæðingaskeiðið í unglingaflokki með glæsi einkunn uppá 7,58!
Benedikt var stigahæsti knapi mótsins í unglingaflokki. Glæsilegur árangur hjá Bensa okkar sem hefur átt frábært lokaár í unglingaflokki.
Erum við Harðarfélagar stoltir af okkar fólki og óskum við þeim og öllum þeim knöpum sem létu til sín taka á keppnisbrautinni í Víðidalnum til hamingju með árangurinn. Áfram Hörður
Bjarney Anna tók þessa glæsilegu mynd af Aðalheiði og Óskari.
Mynd af Bennsa og Leira er tekin af Arnari Bjarka.
Reykjavikurmeistaramót 2020
Benedikt var stigahæsti knapi mótsins í unglingaflokki. Glæsilegur árangur hjá Bensa okkar sem hefur átt frábært lokaár í unglingaflokki.
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn