Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Tveggja daga námskeið með Hinrik Sigurðssyni reiðkennara fyrir Fræðslunefnd Harðar

18. mars 2020 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

9. og 10. apríl næstkomandi (skírdagur og föstudagurinn langi) verður einkatímanámskeið sem Hinrik Sigurðsson reiðkennari mun kenna. Námskeiðið er sett upp sem einkatímar, 30 mínútur hver. Tveir tímar hvor dag og spjall/bókleg í hádeginu fyrri daginn. Fólki er velkomið að (og má gjarnan) fylgjast með öðrum nemendum á námskeiðinu en hafa bara gildandi reglur varðandi umgengni fólks í huga.

Farið verður í það sem hver og einn vill með sinn hest, staðan metin og markmið sett fyrir framhald í þjálfun, hvert svo sem takmarkið er. Námskeiðið er ætlað fullorðnum (ungmenni og unglingar velkomnir ef pláss leyfir – hafið samband þá í hordur@hordur.is) og er kennt frá 8 á morgni til 17 síðdegis báða dagana, tímar eru festir fyrirfram.

Námskeiðið kostar 30000 á mann, 8 manns komast að og skráning er í gegnum Sportfeng.