OPIÐ HÚS á degi íslenska hestsins – Hestamannafélagið Hörður býður bæjarbúa velkomna á opið hús í reiðhöll félagsins að Varmárbökkum þriðjudaginn 1. maí kl. 15:00. Boðið verður uppá stutta og fjöruga sýningu, en meðal atriða eru: – Atriði félagsins úr sýningunni Æskan og Hesturinn – Súsanna Sand Ólafsdóttir reiðkennari sýnir ótrúlegt samspil við gæðing sinn – Kátar konur – Knapar sem eru að ljúka hæsta stigi Knapamerkja Að sýningu lokinni gefst gestum kostur á að klappa hestunum og spjalla við knapana. Upplýsingabás um starfsemi félagsins verður á staðnum og vöfflusala. Þá verður hægt að kynna sér reiðnámskeið Hestamenntar í sumar. Bæjarbúar eru hvattir til að líta við og sjá öflugt starf hestamanna í Mosfellsbæ.
1. Maí – Dagur Íslenska Hestsins – Opið hús
OPIÐ HÚS á degi íslenska hestsins – Hestamannafélagið Hörður býður bæjarbúa velkomna á opið hús í reiðhöll félagsins að Varmárbökkum þriðjudaginn 1. maí kl. 15:00.

Boðið verður uppá stutta og fjöruga sýningu, en meðal atriða eru:
– Atriði félagsins úr sýningunni Æskan og Hesturinn
– Súsanna Sand Ólafsdóttir reiðkennari sýnir ótrúlegt samspil við gæðing sinn
– Kátar konur
– Knapar sem eru að ljúka hæsta stigi Knapamerkja
Að sýningu lokinni gefst gestum kostur á að klappa hestunum og spjalla við knapana.
Upplýsingabás um starfsemi félagsins verður á staðnum og vöfflusala. Þá verður hægt að kynna sér reiðnámskeið Hestamenntar í sumar.
Bæjarbúar eru hvattir til að líta við og sjá öflugt starf hestamanna í Mosfellsbæ.
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn