Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

HIN ÁRLEGA HROSSAKJÖTSVEISLA 8-VILLTRA VERÐUR HALDIN 7. OKTÓBER N.K. Í HARÐARBÓLI

9. september 2017 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Miðasala hefst 16. september. Hægt er að panta miða hjá formanni 8-villtra, með því að senda tölvupóst á kk@ru.is . Pöntunin verður þó ekki tekin gild fyrr en miðar hafa verið greiddir inn á reikning 8-villtra (sjá að neðan upplýsingar um reikning 8-villtra).Athugið, fyrstur kemur, fyrstur fær.

 

Miðaverð aðeins krónur 7.500 og miðinn gildir sem happdrættismiði að venju. Eins og alltaf, mun  ágóði af veislunni verða nýttur til að efla og styrkja hestamannafélagið Hörð.

Reikn.nr.:528-26-254

Kt.:470317-0780

Eigandi:Reiðfélagið 8 villtir

 

Eins og venjulega verður matseðill aldarinnar eftirfarandi:

•                    Fordrykkur

•                    Forréttur

•                    8-villt hlaðborð að hætti Hadda

•                    Sérréttur fyrir gikkina

•                    Eftirréttur

•                    Barinn opinn allan tímann

 

•                    Húsið opnar kl. 19:00

•                    Veislustjóri verður Samúel Örn Erlingsson

•                    Uppistandarinn og skemmtikrafturinn Saga Garðars kemur og kítlar hláturtaugarnar

•                    Myndasýning úr ferðum 8-villtra

•                    Happadrætti – Ótrúlegir vinningar 

•                    Hörkudansleikur fram eftir nóttu undir dyggri stjórn Heiðars Austmanns