Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Fyrirlestur og sýnikennsla með Dr. Susanne Braun

7. apríl 2016 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Fyrirlestur og sýnikennsla  með Dr. Susanne Braun

þriðjudaginn 12 apríl 2016 kl 19:00 í Harðarbóli



Á milli hests og knapa liggur hnakkurinn



Oft er erfitt fyrir knapa að átta sig á því hvar hnakkurinn á að liggja.

Margt þarf að hafa í huga:





Passar hnakkurinn á hestinn ?

Hvaða áhrif  hefur bygging og yfirlína á legu hnakksins ?

Skaðast hesturinn þegar hnakkurinn liggur ekki á réttum stað?

Hvers vegna rennur hnakkurinn fram?

Er hesturinn minn kvíðinn fyrir hnakknum?

Eru dýnur nytsamlegar og áhrifa valdar?



Til þess að fræða knapa og áhugafólk um  hnakka sem er tengiliður á milli

hests og knapa  bjóðum við upp á fyrirlestur og sýnikennslu.

Fyrst verður fjallað um byggingu og hreyfingu hestsins með knapa á baki.

Í sýnikennslu sjáum við nokkra knapa með mismunandi hesta. Við skoðum þá

hnakklausa í kyrrstöðu og svo með hnakk í reið og metum hvort hnakkurinn

passi og liggi á réttum stað. Svo biðjum við knapana að laga hnakkinn, færa

hann til eða skifta um og skoðum svo aftur hestana í reið.

Ræðum  hvort við  sjáum breytingu á hestunum og hvort knapinn finni mun.

 

Allir velkomnir.

 

Kveðja fræðslunefnd Harðar