Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Stjórnarfundur Harðar, 10. nóvember 2015

26. nóvember 2015 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Stjórnarfundur Harðar, 10.nóvember 2015

Haldin að Varmárbökkum

Mætt eru: Jóna Dís Bragadóttir (JDB), Oddrún Ýr Sigurðardóttir (OÝS), , Gylfi Þór Þorsteinsson (GÞÞ), Alexander Hrafnkelsson (AH), Gunnar Örn Steingrímsson (GÖS), Haukur Nílelsson (HN), Sigurður Guðmundsson (SG), Ólafur Haraldsson (ÓH) .

1.Fundargerðir síðasta stjórnarfundar samþykkt.

 

2.Harðarból

Tillaga kom um að hægt verði að skipta salnum í tvennt og að félagsmenn hafi möguleika á að leigja hann fyrir minna verð.

 

3.Lausaganga hrossa yfir vetrartíma

Samningur sem er í gangi varðandi lausagöngu hrossa við Mosfellsbæ, Tómas hjá Mosfellsbæ vill meina að vaktir sem eru í gangi yfir sumartímann eigi að vera líka yfir vetrartímann. Þurfum að skoða hvernig við högum okkur varðandi þetta.

 

4.Deiliskipulag hesthúsahverfis Harðar

Deiliskipulagið kynnt sem hefur verið unnið af Sæmundi Eiríkssyni, Gunnari Steingrímssyni og Jónu Dís. Áætlað að setja þetta inná heimasíðuna. Skiladagur fyrir athugasemdir er 25.nóvember.

5. Önnur mál

– Starfsmaður reiðhallar búin að segja upp. Samþykkt að auglýsa eftir nýjum starfsmanni.

 

Skilti

Götukortið sem á að koma inní hverfið kemur í vikunni.

 

Nefndir

Ágætlega gengur að manna nefndir félagsins.

 

Reiðmaðurinn

– Rætt var um reiðmanninn,hvort þau geti leigt höllina hjá okkur, þurfum að skoða dagskránna varðandi það mál.



Fleira ekki fært til bókar.

Fundarritari: OÝS