Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

HUGIÐ AÐ HESTHÚSUNUM YKKAR – HÖRÐUR GÆTI VERIÐ ÞAR

26. október 2015 Hestamannafélagið Hörður Comments Off
Tiklynning frá Björgunarsveitunum – endilega hugið að hesthúsunum ykkar – hann gætir verið þar.
_____
 
Þar sem hesthús standa oft tóm á þessum árstíma og eitthvað fram á vetur viljum við hvetja þá sem þau eiga til að fylgjast með þeim á komandi dögum, vikum og mánuðum á meðan Hörður er ennþá ófundinn. Miðað við tölfræði um hegðun týndra sem inniheldur upplýsingar um fjölda erlendra leitaraðgerða sem svipar til leitarinnar að Herði eru miklar líkur á að viðkomandi finnist í byggingu. Það er því ekki hægt að útiloka að hann gæti leitað skjóls í hesthúsi þar sem hægt er að komast inn og halda til í nokkuð góðu yfirlæti í hlöðu eða kaffistofu.
 
Verði fólk vart við eitthvað sem gæti gefið vísbendingar um ferðir hans ætti að tilkynna það til lögreglu í gegnum neyðarlínuna, 112.
 
Líklegustu svæðin sem við erum að horfa á eru Höfuðborgarsvæðið frá Hafnarfirði að Kjalarnesi/Mosfellsheiði og Hveragerði. Það væri gott ef þið gætuð komið þessari ábendingu á framfæri við ykkar félagsfólk ef það er ekki þegar búið að gera það, til dæmis í gegnum sameiginlegar Facebook síður eða aðrar slíkar leiðir. Ef þið vitið af öðrum hestamannafélögum á svæðinu sem fá ekki þennan póst væri gott ef þið gætuð látið þau vita líka.
 
Kær kveðja,
Guðmundur Ólafsson

 
Svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 1 svaedi1@landsbjorg.is – Bakvakt: 899 9232 – http://www.landsbjorg.is/