Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

GÆÐINGAMÓT HARÐAR 2015

25. maí 2015 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Gæðingamót Harðar fer fram dagana 5.júní – 7.júní 2015. 

Mótið er gæðingakeppni Harðar og því eingöngu fyrir skuldlausa Harðarfélaga.

Tölt og skeið er opið fyrir alla.

Skráning fer fram á Sportfeng.

Skráning hefst miðvikudaginn 27.maí og lýkur mánudaginn 1.júní. á miðnætti

Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr 3500 en fyrir börn og unglinga kr 3000. 

Skráningargjald fyrir tölt og skeiðgreinar er kr 3.000.

Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt! Þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk, C flokk og pollar verða að tilkynna það með því að senda póst á hordur@hordur.is

Boðir verður upp á eftirfarandi flokka:

A-flokk gæðinga

A-flokk gæðinga áhugamenn

B-flokk gæðinga

B- flokk gæðinga áhugamenn

C- flokk gæðinga (ef næg þátttaka næst)

Ungmenni

Unglingar

Börn

Tölt opin flokkur

Tölt áhugamenn

Tölt T7 börn og unglingar

Tölt 17 ára og yngri

Skeið 100m, 150m, 250m

Pollar teymdir og pollar ríða einir – senda skráningu á hordur@hordur.is.

Unghrossakeppni – skráning fer fram á sprotfeng undir: annað

Einnig hvetjum við fólk til að skrá sig í flokka miða við keppnisreynslu hvers og eins.

Mótanefnd áskilur sér þann rétt að fella niður flokka ef ekki næst næg þátttaka.