Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Knapamerkin í Herði fyrir fullorðna

7. janúar 2014 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Í vetur verður á ný boðið upp á knapamerkjanámskeið fyrir fullorðna í Herði. Kennt verður á öllum stigum ef næg þátttaka næst, 1 og 2 saman og svo 3 og 4. Við byrjum veturinn á að bjóða upp á stöðupróf fyrir stig 1 og 2.

Stöðuprófið er bæði skriflegt og verklegt. Nemendur koma með eigin hest. Skráning og nánari upplýsingar um stöðuprófið eru hjá Oddrúnu í síma 849-8088 og oddasig@gmail.com. Einnig má finna upplýsingar um knapamerkin og æfingapróf á knapamerki.is. Kostnaður við prófið er 8000 kr. en tímasetning verður auglýst þegar skráning liggur fyrir.

Kennari knapamerkjanna í ár verður Oddrún Ýr Sigurðardóttir. Oddrún ætti að vera flestum Harðarmönnum kunn. Hún hefur meðal annars sinnt reiðkennslu á síðustu 10 árum bæði á vegum félagsins og víðar auk þess að dæma knapamerkjarpróf. Oddrún útskrifaðist frá Hólaskóla árið 2003.

Stefnt er að því að kennsla á knapamerkjum hefjist mánudaginn 20. janúar. Námskeiðskostnaður er svohljóðandi og miðast við u.þ.b. 16 kennslustundir.

Knapamerki 1 og 2: 30.000 kr.

Knapamerki 3: 35.000 kr.

Knapamerki 4: 43.000 kr.

Skráning skal eiga sér stað í gegnum Sportfeng (velja skráningarkerfi):

http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

1. Velja námskeið.

2. Velja hestamannafélag (Hörður).

3. Skrá kennitölu þátttakanda – (Ef kennitala ekki í félagaskrá, þarf að fara inná www.hordur.is og sækja um aðild).

4. Velja atburð (og hóp ef fleiri en einn hópur).

5. Setja í körfu.

6. Velja greiðslufyrirkomulag: Greiðslukort eða millifærsla. Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafi borist.

Fleiri námskeið á vegum félagsins verða kynnt á næstu dögum hér á síðunni, meðal annars almennt keppnisnámskeið, aftur á bak, vinna í hendi og fleiri spennandi námskeið.