Hestamannafélagið Hörður og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamninganámskeið sem hefst mánudaginn 4. nóvember nk. Hver þátttakandi kemur með sitt tryppi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar s.s: Atferli hestsins, leiðtogahlutverk, fortamningu á tryppi, undirbúning fyrir frumtamningu og frumtamningu.
Námskeiðið spannar fjórar vikur og verður á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum. Verð 35.000.- Kennt verður fyrstu tímana á fóðurgangi í hesthúsinu hjá Katrínu Sif, síðan í reiðhöll Harðar. Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi eru 12 manns. Bóklegir tímar verða sameiginlegir. Nemendur fylgjast með hvor öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for og frumtamningu. Námskeiðið endar á reiðtúr.
Harðarfélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið.
Námskeiðið þarf að greiða að fullu eigi síðar en viku fyrir fyrsta kennslutímann, sendið kvittunina fyrir greiðsluni á lilja@kraftaverk.is. Skráningu lýkur 20. September. Félagið áskilur sér rétt til að fella niður námskeiðið fáist ekki næg skráning.
Frumtamningarnámskeið með Robba Pet
Námskeiðið spannar fjórar vikur og verður á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum.
Verð 35.000.- Kennt verður fyrstu tímana á fóðurgangi í hesthúsinu hjá Katrínu Sif, síðan í reiðhöll Harðar. Fjórir verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi eru 12 manns. Bóklegir tímar verða sameiginlegir. Nemendur fylgjast með hvor öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for og frumtamningu. Námskeiðið endar á reiðtúr.
Harðarfélagar ganga fyrir en námskeiðið er öllum opið.
Skráning er hafin hjá lilja@kraftaverk.is
Námskeiðið þarf að greiða að fullu eigi síðar en viku fyrir fyrsta kennslutímann, sendið kvittunina fyrir greiðsluni á lilja@kraftaverk.is. Skráningu lýkur 20. September.
Félagið áskilur sér rétt til að fella niður námskeiðið fáist ekki næg skráning.
Fræðslunefnd Harðar.
Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn