Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Fundargerð 12.febrúar 2013

11. apríl 2013 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Stjórnarfundur haldinn í Hestamannafélaginu Herði 12.febrúar 2013.

Mættir voru: JDB, RRB, RBT, AH, AS, SG, ÓH, GÞÞ,

Fjarverandi: GÁH, GÖS.

2. Fundur með atvinnumönnum í Herði – JDB, AH, RT – gera grein fyrir fundi sem haldinn var með atvinnumönnum í Herði og þeim gerð grein fyrir hækkunum sem gerðar hafa verið á lyklum í reiðhöllina. 

3. Samskipti við Mosfellsbæ – JDB – hefur gegnið frekar hægt, en var að senda Haraldi tölvupóst, hefur gengið illa að ná sambandi við Þorstein í Áhaldahúsinu.

4. Árshátíð Harðar – Gengur vel – uppselt.

5. Önnur mál.

– Fyrirspurn vegna tíma í höllinni, hvort hægt sé að kaupa 40 tíma og fá meiri afslátt. 10 tímar kosta 20.000 sem er 20% aflsáttur. – ákveðið að gefa ekki meiri afslátt.

 – Yfirbygging á þularstúku í reiðhöllinni – Við ákváðum að láta búa til n.k. box utan um þularstúkuna í höllinni áður en allt þar eyðileggst. Ákveðið var að fá Forsta og Magnús Inga sem eru að temja í hverfinu til að gera þetta.  Magnús Ingi er blikksmiður og bar búinn að taka mál og þeir gera þetta mjög ódýrt

– Loka þarf höllinni kl.17.00 föstudaginn 22.febrúar. – vegna folaldasýningarinnar.

– Styrkur frá Íslandsbanka, rennur eitthvað af honum til mótanefndar? RT ætlar að athuga það.

Fleira ekki gert og fundi slitið 18.45

Jóna Dís Bragadóttir