Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

10 dagar í árshátíðina

13. febrúar 2013 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Kæru félaga, nú eru 10 dagar í hátíðina miklu 🙂 Árshátíðarnefndin vill minna þá sem eiga miða að sækja þarf þá í Harðarból á morgun fimmtudag milli 20-22. Eins verður hægt að taka frá borð þegar búið er að greiða miðanna 🙂 


Matseðillinn á árshátíðinni er

Blandaður forréttur:

Lax, rækjur og grafið folald með alioli.

Aðalréttir:

Hunangsgljáðar kalkúnabringur, glóðarsteiktar
lundir (að hætti Hadda kokks), sætarkartöflur m/sykurpúðum og valhnetum,
kartöflugratín, rótargrænmeti, ferskt salat, villisveppasósa og
madeirasósa.

Eftirréttur:

Konfektterta að hætti Líneyjar.

Sjáumst hress og kát á þessari árshátíð sem haldin er í fyrsta skipti í okkar félagsheimili 

Árshátíðarnefnd.