Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Viðurkenningar fyrir frábæran árangur á keppnisárinu 2012

24. janúar 2013 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Í kvöld fór fram kjör á íþróttamanni og íþróttakonu
Mosfellsbæjar í Íþróttahúsinu að Varmá.  Margir fengu viðurkenningar og
þar á meðal fimm Harðarfélagar.

Reynir Örn Pálmason fékk viðurkenningu fyrir að vera tilnefndur sem Hestaíþróttamaður Harðar 2012.

Lilja Ósk Alexandersdóttir fékk viðurkenningu fyrir að vera tilnefnd sem Hestaíþróttakona Harðar 2012. 

Reynir Örn Pálmason fékk viðurkenningu fyrir að vera í landsliði Íslands í Hestaíþróttum á Norðurlandamóti í Svíþjóð 2012.

Anton Hugi Kjartansson og
Súsanna Katarína Guðmundsdóttir fengu viðurkenningu sem efnilegir íþróttamenn
16 ára og yngri. 

Harpa Sigríður Bjarnadóttir fékk viðurkenningu fyrir
Íslandsmeistaratitil í fimi unglinga.

Óskum við Harðarfélagar þeim innilega til hamingju og
velfarnaðar á komandi ár.