Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Ársskýrsla fræðslunefndar Harðar veturinn 2011-2012

19. desember 2012 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Starf
Fræðslunefndar Harðar veturinn 2011-2012

 

Nefndina skipuðu
Maríanna Eiríksson, Helena Jensdóttir, Lilja Ívarsdóttir, Berglind Rafnsdóttir
og Guðrún Magnúsdóttir


Yfir 100 manns sóttu
reiðnámskeið á vegum Harðar veturinn 2012. Hafður var sami háttur á og í fyrra
að hafa 4–5 í hóp og reiðtíminn 45-50 mín. Ýmiss reiðnámskeið voru í boði bæði
gömul og ný. James Faulkner bættist í hóp okkar frábæru reiðkennara og stóð sig
með sóma

Aftur
á bak
 er byrjenda
námskeið og/eða fyrir þá sem hafa misst kjarkinn en vilja komast í hnakkinn
aftur. Kennari var Oddrún Ýr Sigurðardóttir, 5 nemendur sóttu það námskeið í 8
skipti.

Almennt
reiðnámskeið
var kennt eins og undanfarin ár, alltaf
vinsælt námskeið enda voru alls 32 skráðir á það 19 á það fyrra og 13 á seinna
námskeiðið. Kennarar voru Súsanna Ólafsdóttir og James Faulkner. Þessi námskeið
voru í 6 vikur 6x í viku og svo var boðið upp á framhald hjá Súsönnu 3x í viku
í 6 vikur.

Áseta
og líkamsbeiting knapans
var í höndum Line Norgaard eins og
í fyrra og gekk frábærlega vel, 8 sóttu það námskeið í 8 skipti.

Keppnisnámskeið
fyrir konur
. Markmiðið var að taka þátt í
Lífstöltinu eins og í fyrra. Kennari var Oddrún Ýr Sigurðardóttir. Kennt var á
sunnudögum 9 skipti, 2 hópar, 4 í hvorum hópi.

Almennt
/ keppnisnámskeið.
James Faulkner var með það námskeið sem
var í bland almennt reiðnámskeið og keppnisnámskeið þar var markvisst stuðlað
að uppbyggingu og þjálfun á reiðhesti/keppnishesti. Ætlað þeim sem höfðu hug á
að taka þátt í hvers kyns mótum eða til að öðlast meiri reynslu í að þjálfa upp
reiðhest / keppnishest. Námskeiðið var vel sótt eða 10 nemendur, 2 hópar í 10
skipti.

Unghrossanámskeið.
Tvö unghrossanámskeið voru haldin í vetur og virðast vinsældir þess aukast með
hverjum vetri. 9 nemendur skráðu sig á það, 5 nemendur á fyrra námskeiðið og 4
á því seinna.
Nemendur komu með vel reiðfær unghross en lítið tamin og fengu á
átta tímum einu sinni í viku leiðsögn varðandi áframhaldandi tamningu.
Kennari
var Line Norgaard.

Pat Parelli – seven games var nýtt reiðnámskeið
sem Ragnheiður Þorvaldsdóttir kenndi og kom með hugmyndina að. Fólk þyrsti greinilega í eitthvað nýtt því það varð sprenging í
skráningum, okkur öllum að óvörum og nýjasti fræðslunefndar meðlimurinn okkar,
sem átti að fá eitthvað ‘‘auðvelt‘‘ verkefni svona fyrst, var kófsveitt við
skráningar en  stóðst þetta áhlaup með
prýði og þegar yfir lauk höfðu 15 manns skráð sig á fyrra námskeiðið sem var 6
skipti og 8 fóru svo á seinna námskeiðið en það var 4 skipti. Þetta námskeið
tókst mjög vel og fólk var mjög ánægt.

Hindrunarstökk
og leikir
var annað nýtt ‘‘reiðnámskeið‘‘ sem er lengi búið
að vera hugmynd hjá okkur í fræðslunefnd og varð svo að veruleika sl. vor.
Súsanna Ólafsdóttir var með það og þótti ótrúlega skemmtilegt 5 sóttu það
námskeið í 6 skipti.

Helgarnámskeið
var
svo haldið með franska
reiðkennaranum Michell Becker, 8 nemendur sóttu það námskeið sem samanstóð af
bæði bóklegu og verklegu.

Fræðslunefnd
og æskulýðsnefnd sameinuðust um fyrirlestur í 
janúar og fengum við Ingimar Sveinsson til að vera með fræðslu um
umhirðu og fóðrun hrossa sem var mjög vel sótt.

Fræðslunefnd
ákvað í byrjun vetrar að hafa mat á reiðkennurum. Við mættum í síðasta tíma
hvers námskeiðs með þar til gerð eyðublöð og létum nemendur svara nokkrum
spurningum um kennarann og námskeiðið. Kennarar fengu mikið hrós og góðar
ábendingar komu fram. Það kom skýrt og greinilega í ljós að nemendur voru mjög
ánægðir með kennsluna og námskeiðin í heild.

Fræðslunefndarstarfið
tókst mjög vel þennan vetur að okkar mati, eins og reyndar undanfarna vetur.

 

Fh. Fræðslunefndar Harðar

Helena Jensdóttir

Formaður

 

Ég vil biðja fræðslunefndina afsökunar á því að skýrslan birtist ekki í ársskýrslu félagsins þar sem formaður nefndarinnar var búin að skila henni vel í tíma, einnig vil ég þakka nefndinni vel unnin störf á sl. vetri sem og öðrum nefndum félagsins.

Rekstrarstjóri.