Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Myndbandið klippt til að koma höggi á tamningamanninn

4. desember 2012 Hestamannafélagið Hörður Comments Off
Það
fór ekki fram hjá neinum að ung tamningastúlka var tekin fyrir og
mannorð hennar dregið um forina nú fyrir stuttu í tengslum við myndband
sem birt var á netinu. Þetta mál verður vonandi til þess að menn dragi
andan áður en þeir leggjast í heiftuga fordóma gagnvart meðbræðrum sínum
og systrum. Ég vona að þessi sýknun fái jafn mikla athygli og
dreyfingu og fyrri hluti málsins, en eftirfarandi er niðurstaða
aganefndar félags tamningamanna:





"Í samræmi við lög Félags
tamningamanna vísaði stjórn Félags tamningamanna umræddu máli til
aganefndar félagsins til að málið mætti fá faglega og viðeigandi
umfjöllun og úrlausn.


Aganefnd Félags tamningamanna hefur tekið
málið fyrir að beiðni stjórnar Félags tamningamanna og komist að
eftirfarandi niðurstöðu:




“Aganefnd Félags tamningamanna fundaði í Borgarnesi 29.11.2012 vegna
erindis frá FT þann 20.11.2012. Aganefnd hefur horft á upprunalegt
myndband óklippt og farið yfir önnur gögn málsins. Aganefnd gerir ekki
athugasemdir við framgöngu tamningamannsins og sér ekki ástæðu til
frekari íhlutunar. Það myndband sem birtist á ljósvakamiðlum er afbakað
og tekið úr samhengi, verður ekki annað séð en það sé gert til að koma
höggi á viðkomandi tamningamann.





Aganefnd Félags Tamningamanna"