Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Brokk-Kórinn

12. september 2012 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Brokk-kórinn á nýjum skóm


Langar þig að syngja með skemmtilegum kór þar sem  þú hittir fyrir áhugafólk um hestamennsku og aðra útivist?


Kórinn
gengur nú í endurnýjun lífdaga og auglýsir eftir hressu söngfólki í
söngprufur en þær eru nýjung hjá kórnum.  Raddprófin eru ekki neitt sem
söngvari þarf að óttast eða vera kvíðinn yfir, heldur bara notaleg stund
þar sem hitað verður upp sameiginlega og sungnir nokkrir stuttir
lagbútar. Markmiðið er að söngvari sé staðsettur á raddsviði sem hentar
viðkomandi og að raða þannig í raddir að jafnvægi náist í kórnum.

Raddprófin fara  fram í nýrri og glæsilegri æfingaaðstöðu kórsins í
tónlistarstofu Vatnsendaskóla við Funahvarf 2. Með stjórnanda verður
söngkonan Arndís Halla Ásgeirsdóttir sem er nýflutt til landsins frá
Þýskalandi þar sem hún hefur sungið og samið


tónlist fyrir stærstu og
viðamestu hestasýningu í heimi "Appassionata," ásamt því að semja og
syngja eigin tónlist og annarra  inná hljómplötur.





Kvenraddir: Mánudagur 10. September frá kl. 19.30-21.30


Karlaraddir: Mánudagur 17. September frá kl. 19.30-21.30





Kórstarfið
sjálft hefst svo 24. september og verða æfingar á mánudagskvöldum frá
kl. 19:30 – 21:30 í Vatnsendaskóla. Þá verður lagalisti fyrir haustönn
lagður upp og nótumöppur afhentar.


Við hvetjum gamla og nýja kórfélaga til að koma og vera með frá upphafi. Við tökum vel á móti ykkur 


Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu kórsins www.123.is/brokk eða Facebooksíðu okkar. Formaður Kórsins Sigurður Svavarsson veitir einnig upplýsingar í síma 6603197 eða í tölvupósti:  sigurds@husa.is


Stjórnandi er Magnús Kjartansson