Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Hópreið Harðarmanna sunnudaginn 24. júní

20. júní 2012 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Harðarmenn þurfa að leggja af stað kl 11:30. Lagt verður af stað úr naflanum. Lilla okkar hin eina sanna verður farastjóri:) fjölmennum í þessa ferð á landsmót. Félagsgrillið verður þennan dag á Fákssvæðinu kl 16:00, vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn. Hér fyrir neðan kemur dagskráin hjá hinum félugunum. 

09:00:  Sóti leggur af stað frá Bessastöðum


11:00   Sörli og Máni/Brimfaxi leggja af stað frá Sörlastöðum


12:30   Lagt af stað frá Andvara/Gusti


14:00   Lagt af stað frá Almannadal (allir)


Ákveðið
að Sörlamenn myndu ríða meðfram flóttamannaleið upp í Andvara (stystu
leið) og síðan yrði farið frá Andvara/Gusti austanmegin við Elliðavatn –
Rauðhólar og undirgöng undir Suðurlandsveg.  Frá Almannadal yrði riðið
reiðveginn sem er næst Suðurlandsvegi – síðan undirgöng, í gegnum
Víðidal – undigöng og komið inná stóra völlinn sunnanmegin.





Sörlamenn:  líklega munum við í Sóta bíða eftir ykkur við Maríuhella – þarf aðeins að ræða við mitt fólk….





Frá Almannadal ríða hópstjórar með fána síns félags fremstir í flokki reiðarinnar og jafnvel tveir með íslenska fánann að auki.





Fákur
býður svo öllum knöpum í kjötsúpu og hægt að setja hesta í gerði hjá
þeim 🙂  Andvari/Gustur ætla einnig að taka vel á móti ferðalöngum 😉





Ákveðið að bjóða stjórn Landsmóts sérstaklega að ríða með okkur

Sjáumst á LM 2012