Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Rafmagnslaus rafgirðing -gagnslítil girðing

13. júní 2012 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

Á það skal minnt að
samkvæmt reglugerð frá ráðuneyti stjórnaráðsins er notkun gaddavírs í og við
þéttbýli bönnuð. Rafgirðingar eru því kosturinn sem hestamenn nýta sér í auknum
mæli.

Samkvæmt tilmælum frá
bæjaryfirvöldum skal nota rafstöðvar við allar rafgirðingar í löndum
Mosfellsbæjar sem Hestamannafélagið Hörður leigir félagsmönnum sínum.
Rafgirðing án rafmagns getur fljótlega orðið haldlítil ef ekkrt er rafmagnið.
Viljum við því minna alla þá sem eru með slíkar girðingar að rafvæða hið
snarasta hafi það ekki verið gert nú þegar. Dýragæslumaður Mosfellsbæjar mun á
næstu dögum mæla girðingarnar og verða gerðar athugasemdir við þá sem ekki eru
með hlutina í lagi.

Þá er mælst til þess
að girðingar með rafmagni séu merktar með tryggilegum hætti. Hægt er að fá
sérstök spjöld til að hengja á girðingarnar eða festa á staura í verslunum m.a.
hjá Brimco hér í Mosfellsbænum svo ekki þarf að fara um langan veg til að kippa
því í liðinn.

Ennfremur skal á það
minnt að leigjendur beitarhólfa ber skylda til að kaupa ábyrgðartryggingu á
hross sem eru í landi Mosfellsbæjar. Ábyrgðartryggingar eru ekki dýrar
tryggingar en geta hinsvegar komið sér vel ef hestar til dæmis hlaupa fyrir bíl
þar sem skaðabótakröfur geta hlaupið á tugmilljónum ef illa fer. Má því segja
að hesteigendur ættu almennt séð að vera með ábyrgðartryggingu á öllum sínum
hrossum.

Að síðustu skal
beitarleigjendum bent á að kynna sér vel þær reglur sem gilda um beit hjá Herði
í löndum Mosfellsbæjar.

Beitarnefnd