Hestamannafélagið Hörður · Mosfellsbær 864 7753 hordur@hordur.is

Umgengisreglur hestamanna

21. maí 2012 Hestamannafélagið Hörður Comments Off

 Sleppitúrar og
ferðalög
.


Almenningi er heimil för um landið og dvöl þar í lögmætum
tilgangi. Öllum er skylt að ganga vel um náttúru landsins og sýna ýtrustu varúð
þannig að henni verði ekki spillt.


Á ferð um landið sýnum við landeiganda og öðrum rétthöfum
lands fulla tillitssemi, virðum hagsmuni þeirra, m.a. vegna búpenings og
ræktunar, þar á meðal skógræktar og landgræðslu, fylgjum leiðbeiningum þeirra
og fyrirmælum varðandi ferð og


umgengni um landið.


Ferðumst eftir merktum og skilgreindum leiðum, stígum og
vegum eftir því sem auðið er, virðum girðingar, förum um hlið og gætum þess að
loka þeim á eftir okkur. Sérstök gát skal höfð í nánd við búsmala, varplönd
fugla, selalátur, veiðisvæði og veiðistaði.


Þegar farið er ríðandi um landið skal fylgt skipulögðum
reiðleiðum, stígum, eins og kostur er. Á ferð um hálendið og önnur lítt gróin
svæði skal flytja með sér eða kaupa fóður handa hrossum í náttstað. Gæta skal
að því að flytja ekki hey á milli sauðfjárveikivarnarhólfa.


Í þjóðgörðum s.s. Vatnajökulsþjóðgarði skal haft fullt
samráð við þjóðgarðsverði um tilhögun ferðar og hlíta reglum þjóðgarðsins.


Ábyrgur rekstrarstjóri skal fara fyrir hópi reiðmanna með
lausa hesta.


Sýnum tillitssemi og varúð, lög um náttúruvernd eru lög í
þágu hestamanna og landsins.


 

Landssamband hestamannafélaga

Ferða- og samgöngunefnd.