Dagana
29.mars – 1.apríl fer hátíðin Hestadagar í Reykjavík fram. Hátíðin
verður sett í verslun Líflands að Lynghálsi fimmtudaginn 29.mars klukkan
18:00 – 20:00. Haraldur Þórarinsson formaður Landssambands
hestamannafélaga setur hátíðina, sýnt verður það nýjasta í reiðfatnaði
með glæsilegri tískusýningu sem Halldór Gylfason leikari og hestamaður
með meiru mun stjórna. Boðið verður upp á léttar veitingar og hver veit
nema leynigestur/hestur muni láta sjá sig, allir velkomnir. Hestadagar í
Reykjavík eru nú haldnir í annað sinn og framundan er glæsileg dagskrá
þar sem allir ættu að finna eitthvað áhugavert. Dagskrá Hestadaga í
Reykjavík má nálgast á heimasíðu hátíðarinnar www.icelandichorsefestival.is
Hátíð íslenska hestsins

Nýjustu fréttir
Fréttaflokkar
Fréttasafn